Mæli með löngum helgum, mér finnst að það eigi að fjölga þeim. Í atvinnuleysi hlýtur að vera vit í að stytta vinnuvikuna.
Borðum sultu og verum sæt og góð.
Fann þetta í eldgömlu Ísafold, fyrir sjóndapra þá upplýsist að textinn hljóðar svo:
Var að uppgötva, mér til hrellingar, að ég hef borðað ís á hverjum degi í heila viku. Hvað eru mörg err í því?
Æ, ég veit það ekki. Fréttir eru ofmetnar. Peningar líka.
Var í afmælisboði um daginn og hitti konu sem ég hef þekkt frá því ég var lítil skotta í Kópavoginum. Við sjáumst sjaldan, en hún er systir æskuvinkonu minnar. Þessi ágæta kona lét orð falla sem mér varð svolítið um að heyra. Sagði nefnilega að ég væri með alveg sömu klippinguna og þegar ég var stelpa.
Man þegar allir voru með hland í brók yfir "2000 vandanum" sem átti að leggja vestræna siðmenningu í rúst. Sett var á laggirnar "viðbúnaðaráætlun fjólublár" hjá Almannavörnum og fólk eyddi mokfé í vírusvarnir eða hvað þetta nú hét. Góðæri fyrir tölvukalla, allt í fína með það.
Lost er í sjónvarpinu, þar á fólk við feiknamikil vandamál að stríða. Flókin, og að því er virðist, óleysanleg. Jafvel Ísland er skárra pleis en Losteyjan.Hvort sem maður vill stunda vandaða mökunartilburði eða fágaða fótamennt, er brýnt að fá góða leiðbeiningu. Með nútíma tækni gefast ótal tækifæri til að læra réttu hreyfingarnar.
Dillum okkur (og lærum að telja á finnsku).
Við eigum ekki að setja útlend lög við íslensk kvæði. Við eigum að semja lögin sjálfir....Í fyrsta sinni birtist hér raunveruleg tilraun til að verða við sjálfsagðri áskorun Helga Helgasonar. Þjóðlegur metnaður hans er eggjandi fyrirmynd öllum íslenzkum tónlistarmönnum: Ísland á að verða sjálfbjarga í sönglegum efnum.....Enginn söngur þjóðar þrífst án nægilegs forða af eigin lögum. Lög, tekin að láni frá öðrum þjóðum, verða ávallt stjúpbörn. Þau tjá gleði og sorg með öðrum hætti en oss er eiginlegt og verða því hálfvegis utan gátta, hversu oft sem þau annars eru yfir höfð. Vegur þeirra er vænstur til mannfagnaðar við hlaðið borð og dýra skál.Æskilegum tilfinningastíl við spilun og söng laganna er lýst á fjölbreytta vegu.
Það er aldrei sjarmerandi að væla en mér finnst það satt að segja ömurlegt að hafa ælt í alla nótt og vera hundveik í dag. Á laugardegi og í þessu veðri! Ég sem var búin að hlakka til að fara út í snjóinn, í súrefnismeðferð eftir langa og stranga vinnuviku.
Kannski ég reyni að hafa mig upp í að gera æfingarnar sem hér sjást, svo ég fái þó einhverja hreyfingu um helgina. Og hver veit nema þær hafi æskileg áhrif á hárvöxt.
Er að feta mín fyrstu skref á fésbók eins og nýborinn flóðhestur (flóðfolald?). Finn að ég er haldin djúpstæðri grúppufælni og tortryggni út í hvers konar rafhjarðir. Svo veit ég ekki hvort það var viðeigandi af mér að smella á "like" þegar ég sá þessa meldingu: Hjalti is now single.
ofvæni eftir klónni sem vomaði yfir hrúgunni og tíndi eina og eina úr hópnum. Greyskinnin voru eins og fólk sem bíður með óþreyju eftir himnaríki og telur hérið og núið ómerkilegra en bráðumið.
Þegar maður tapar einum lim, nýtir maður hina betur. Ég er að reyna að drukkna ekki í hörmungahyggju og les því dv. Það hjálpar mér heilmikið.Hefði ég brjóst eins og Dollí og skegg eins og Burt gæti ég án efa sungið betur.
Til hamingju með daginn allar turtildúfur!
1. Fyrir nákvæmlega 200 árum fæddist Charles Darwin.
• Tengslarof barna við feður eftir skilnað er ein alvarlegasta atlaga sem unnin er á barni.Mér finnst þessi skýrsla stórmerkileg lesning, hér er annar bútur úr henni:
• Deilur milli foreldra um umgengni/forsjá skaða barnið, oft alvarlega og til langs tíma.
• Réttarkerfið vinnur seint og oft illa við að afgreiða mál þegar deilur eru milli foreldra um forsjá og/eða umgengni.
• Réttarkerfið og félagsþjónustan almennt virðast oft huga meira að hagsmunum mæðra en hagsmunum barna.
• Á Íslandi eru samtímis a.m.k. 500 börn sem búa við skert lífsgæði og oft alvarlega stöðu vanlíðunar og sorgar vegna deilu foreldra um umgengni og/eða forsjá og vegna tengslarofs við feður. Sérstaklega á þetta við drengi.
• Flest öll skilnaðarbörn kjósa að verja meiri tíma með feðrum sínum en þeim er leyft eða kleift að gera. 70% þeirra vilja dvelja jafnt hjá báðum foreldrum sínum og 30% sem eftir stóðu vildu eyða umtalsverðum tíma með feðrum.
• Mæður virðast geta stýrt samskiptum barna og feðra og tálmað umgengni nánast óáreittar.
• Umgengnistálmanir, illt umtal, heilaþvottur og stýring þess foreldris sem barnið býr hjá gagnvart barninu og hinu foreldrinu eru meðal verstu skaðvalda sem hægt er leggja á barnið.
• Rannsóknir sýna að sameiginleg forsjá skiptir börn mjög miklu máli. Skilnaðarbörn sem búa við sameiginlega forsjá foreldra sinna hafa betri tengsl við báða foreldra og þeim líður almennt betur og þau standa almennt betur félagaslega og námslega en ef forsjá er hjá öðru foreldrinu.
• Mikilvægt er að styrkja rétt barna til jafnrar umgengni við báða foreldra, löggjöfin þarf að taka á því og tryggja börnum þann rétt. Ójöfn umgengni eykur á vanlíðan barna (bls. 3).
Sálfræðingar sem hafa reynslu af sambúðarslitum fólks telja að erfitt sé að gefa upp góða uppskrift að skilnaði af þeirri einföldu ástæðu að yfirleitt er annar aðilinn mun ósáttari við að skilja en hinn. Fyrir þann sem finnur sig yfirgefinn getur skilnaðurinn verið hin versta kreppa tilfinningalega. Skilnaðaróskin vegur að sjálfstrausti þess sem hún beinist að og hann eða hún ver sig oft með reiðiviðbrögðum. Einnig geta sprottið upp sterkar ásakanir með því að ásaka þann sem óskaði eftir skilnaðinum. Framkvæmd skilnaðar verður erfiðari ef þeim einstaklingum sem í hlut eiga gengur illa að vinna úr tilfinningum sínum og ef þeir eiga erfitt með að ræða saman. Í versta falli getur reiðin snúist upp í biturð, heift og hefndarþorsta, einkum hjá þeim sem upplifir sig yfirgefinn og stutt er í ásakanir af ýmsum toga. Stundum verður heiftin og hatrið svo mikið að viðkomandi missir stjórn og sýn á atferli sínu og hegðun. Hörð og ill barátta t.d. um börnin taka á sig ljótar myndir og allir líða fyrir slík átök, ekki síst börnin. Ef annar eða báðir aðilar sitja fastir í tilfinningakreppu er hætt við að átökin haldi áfram milli makanna fyrrverandi og að börnin séu dregin inn í ágreininginn. Rannsóknir á skilnaðarmálum sýna að þegar ofbeldi, ásakanir og tilfinningaleg oftengsl voru undanfari skilnaðar, urðu átök og ófullnægjandi tjáskipti um börnin ríkjandi á eftir. Ef biturð og neikvæð afstaða þess sem óskaði ekki eftir skilnaði verður allsráðandi eru mun minni líkur á bata og viðkomandi getur setið fastur í sálarkreppunni árum eða jafnvel áratugum saman. Einnig hefur komið í ljós ef karlmaðurinn stofnar til nýrrar sambúðar geti fyrrverandi maki (konan) brugðist neikvætt við, sérstaklega ef hún er ekki komin sjálf í nýtt samband (bls. 4).Ég er skilnaðarbarn í þeim skilningi að þjóðin er skilnaðarbarn. Mamma (Sjálfstæðisflokkurinn) er brjáluð og heimtar, bitur og reið, forræðið yfir okkur og pabba (núverandi stjórn) er ekki treyst til að sjá um okkur. Af því að "mommy knows best" og hún getur ekki séð af okkur smástund, ekki einu sinni í helgarleyfi (85 daga langt). Við, hinir almennu borgarar, lendum í því að foreldrarnir eyða öllum kröftum í að rífast, skammast, baknaga, saka aðra um allt, á meðan brýnu málin sitja á hakanum (t.d. að gera eitthvað af viti þannig að við förum ekki á hausinn öll sem eitt). Hagsmunir okkar eru fyrir borð bornir og þetta sjá allir nema foreldrarnir (flokkspólitíkusarnir) sem geta ekki litið upp úr skotgröfunum. Umhverfis litla landið okkar eru stórar þjóðir sem hrista hausinn yfir bullinu sem hérlendir ráðamenn láta frá sér í ræðu og riti.
Það er ekki skilnaðurinn sem hefur skaðlegustu áhrifin á börn. Það eru samskipti foreldranna, fyrir, eftir og í skilnaði (bls. 5).
---------
Ég held næstum alltaf með liðinu sem tapar og finn til með öllum sem eiga bágt. En þrátt fyrir eðlislæga aumingjagæsku, er mér fyrirmunað að bera í bætifláka fyrir Sjálfstæðismenn sem drulluspóla í ruglinu. Hvað er að þessu fólki? Jafnvel amöbur læra af reynslunni. Svo mikið er víst að rök bíta ekki á trú.
Mér var svipt upp í bíl eftir kvöldmatinn, Hjálmar voða dularfullur, muldraði eitthvað um að hann vonaði að ég "guggnaði" ekki. Með dúndrandi hjartslátt sá ég fyrir mér teygjustökk í myrkri, bingó í Tónabæ, ókunnugt fólk í samkvæmisleikjum, Tupperware-kynningu eða annan hrylling sem minn heittelskaði gæti verið að draga mig út í sér til skemmtunar.
Á efri myndinni er kanína sem ég hitti á förnum vegi. Við tókum tal saman. Kom upp úr dúrnum að hún skilur jafn lítið í stjórnmálum og ég. Dæmigert.
hef aldrei verið neitt fyrir augað. Seinna um kvöldið glopraði hann út úr sér að hann væri lítt gefinn fyrir þorramat. Hjálmar er tvímælalaust betri leikari en börnin mín.
Á morgun fæ ég svið með rófustöppu. Líka flatbrauð, hangiket og eitthvert súrmeti. Þegar ég var lítil fékk ég einn dag á ári að ákveða hvað yrði í matinn á heimilinu og valdi ég ýmist þorramat eða kjúkling. Oftar kjúkling, því kjúklingur var exótískur matur þegar ég var barn og mér fannst hann ævintýralega góður.