Nú ríður á að nota höfuð og hönd. Hugkvæmni, bjartsýni, framtak og sköpunarkraft. Rakst á þennan ágæta tengil hjá Hörpu, en hún er sannarlega snillingur í höndum og höfði.
sunnudagur, október 12, 2008
Heklaður kjóll úr álbaukum
Nú ríður á að nota höfuð og hönd. Hugkvæmni, bjartsýni, framtak og sköpunarkraft. Rakst á þennan ágæta tengil hjá Hörpu, en hún er sannarlega snillingur í höndum og höfði.
föstudagur, október 10, 2008
Geirmundur Brún er fauti
Las áðan þessa frábæru færslu, get skrifað undir hvert orð hér. Vildi óska að einhver verði okkur þarna í Bretlandi, það gengur ekki að taka því þegjandi að Íslandi sé kennt um þá kreppu sem gengur yfir heimsbyggðina. Fjandakornið, ef við erum litla þúfan sem velti því hlassi öllu saman, þá erum við sko stórasta litla þúfan í sögu mannkyns.
Auk þess tel ég að augabrúnir Aðalsteins Elskulegs færu prýðilega við efrivör Huggýjar.
fimmtudagur, október 09, 2008
Nigericelandia
Baggalútur gerir nú um stundir meira fyrir geðheilsu mína en 10 sálfræðingar og 17 spaugstofur. Og smá vonarglæta. Ég fékk þetta, að því er virðist ábatasama bréf, sent í pósti í dag:
Honnorabble reeder!
I hop this letter finds you blessd with good helth.
Pls. let me interoduce me. I am Johannes Asgeir Jo brother of well known icelandic busness man.
Just before my brotha disappear he store 30 mill US$ in local storage facilty Rumfatalager.
I now need your help to free this 30 mill US$ CASH!
I am villing to split with you 60/50 on this deel.
Plrase keep this letter a secret, as there are many that would vant a slæs of this tasty kake.
Reply to my email noriskguaranteed@darkside.is
Your brother in faith
Johannes Asgeir Jo
esq.
miðvikudagur, október 08, 2008
Barnasprengjukynslóðarblús
Verkföll mjólkurfræðinga, biðraðir, vöruskortur, normalbrauð, saxbauti, óðaverðbólga, amrískir kaggar, kalda stríðið, víxlar, þorskastríð, sparimerki, kjarnorkuvá, útvíðar gallabuxur, Dallas, axlapúðar, diskó, permanentkrullur, þjóðarsátt, fótanuddtæki, gróðurhúsaáhrif, Árni Johnsen, útrás, peningakjaftæði, heimskreppa. Svo verður okkur hent í gamalmennasorpkvörn, möluð og borin á tún, þegar við, hrum af elli, getum ekki unnið lengur.Hversu óheppin getur ein kynslóð verið? Þeir sem lifðu tvær heimsstyrjaldir höfðu þó allavega lekkera tísku og góða tónlist.
þriðjudagur, október 07, 2008
Dansinn í Hruni
Rætt var við breskan hagfræðing í fréttatíma Sjónvarps í kvöld, en hann sagði viðbrögð hérlendra stjórnvalda og Seðlabanka einkennast af fáti og fumi og kom með annan vinkil á hvernig við gætum tæklað hluta vandans sem við blasir.
Einu sinni fór ég á dansnámskeið með vinkonu minni. Hún og herrann hennar voru stöðvuð í miðri danssveiflu. "Sjáið öll, svona á ekki að gera", kallaði kennarinn hátt og benti á parið, sem stóð kafrjótt og vandræðalegt undir ákúrum leiðbeinandans.
Nú er Ísland parið sem heimurinn horfir á, hlær að og tekur sem dæmi um hvernig á ekki að gera hlutina.
mánudagur, október 06, 2008
Betri eru hyggjur en áhyggjur
"Gleðilega kreppu, elsku baunin mín", sagði hann og tók þétt utan um mig. Æðrulaus, þrátt fyrir aðstæður sem myndu reka margan manninn í volandi uppgjöf.
Svo spilaði hann fyrir mig þetta lag og ég fór að hlæja. Við það hristist hnúturinn í maganum og svei mér ef losnaði ekki aðeins um hann.
Ég er heppin.
sunnudagur, október 05, 2008
Múkk
Langt síðan ég hef séð eins vonda mynd og ég var að horfa á (með hálfu auga) í kvöld. Hún er íslensk og heitir Stella í framboði. Pínlega slæm bara.
Segi ekki meira. Jú, múkk.
laugardagur, október 04, 2008
Ó, hve létt er þitt skóljóð
Sjálf hef ég tilhneigingu til að kaupa mér ljóðabækur og skó.
fimmtudagur, október 02, 2008
Glugginn minn. Núna.
þriðjudagur, september 30, 2008
mánudagur, september 29, 2008
Ég á ekki krónu en langar í öxi
Í dag öðlaðist ég skilning á frönsku byltingunni.
Sé fyrir mér aukna spurn eftir þjónustu handrukkara á næstunni, því eins og einn úr þeirri stétt mælti við vesældarlegan rukkþega í Kompásþætti um daginn: "Sko, þúst, það eru lög og reglur í landinu."
Auk þess lýsi ég yfir þungum áhyggjum af því hversu mjög skilnuðum fjölgar í kreppunni, þ.e. skilnuðum vegna fjárhagsvanda. Veit þetta fólk ekki hvað er hrikalega dýrt að skilja? Það veit ég, maður lifandi.
Fugl dagsins er steypa.
laugardagur, september 27, 2008
Ásta
Nær aldarfjórðungi síðar þekki ég þessa mannveru betur en flesta og víst er að ég elska hana. Skilyrðislaust. Ekkert í þessum heimi skiptir mig meira máli en hamingja barna minna.
Þegar Ásta var kríli og bjó í Amríku, vildi hún alloft láta syngja fyrir sig og féll það iðulega í minn hlut vegna tónfötlunar föður hennar. Ég hef aðeins samið eitt lag um ævina, og var það við vísukorn í bók sem henni fannst skemmtileg. Mamman í bókinni hélt nefnilega áfram að vilja syngja fyrir strákinn sinn þótt hann yxi úr grasi og yrði virðulegur kall.
I´ll love you forever
I´ll like you for always
as long as I´m living
my baby you´ll be.
Miðill miðill það er draugur í bólgunni
Eitt af því sem ég skil ekki er af hverju fólk skýrir hluti sem það skilur ekki með fyrirbærum sem það skilur ekki, t.d. draugum. Hljóð í gömlum húsum eru nærtækt dæmi. Og verðbólgan.
föstudagur, september 26, 2008
Berlúskóní-effektinn dillar sér í gulum kjólum
Horfði á málbeinið brillera í Útsvari. Finnst Útsvar skemmtilegur þáttur, já, pottþétt lúðalegt, ég veit. En er þátturinn Síngíngbí sem nú rúllar á Skjá einum smart? Það þykir mér ekki, og þá er kannski von til þess að hann sé hipp og kúl.
Kær kveðja úr sveitinni.
fimmtudagur, september 25, 2008
Bauneríski draumurinn
Hér er bráðfyndin síða sem hann Hjálmar gróf upp. Óborganlegur þessi amöríski fílingur.

Mér finnst að allar hárgreiðslustofur ættu að hafa forrit í þessa veru, þá gæfist tækifæri til að skoða hvernig mismunandi hárgreiðslur klæði mann, svona áður en skærin segja snippsnipp og maður þarf að fara út á götu með hauspoka.
þriðjudagur, september 23, 2008
Keðjumas
Ásta mín yndisleg klukkaði mig og ætla ég ekkert að gera með það annað en greina frá því að ég er keðju-keðjuslítari. Hef slitið keðjur frá því ég var fóstur, segja má að mér haldi engar keðjur fremur en Húdíni, tala nú ekki um þessar fjárans búðakeðjur. Þegar litli bróðir minn var í alvörunni lítill hafði hann gjarnan þennan brandara á hraðbergi: Viltu veðja? Kúkur og keðja. Ég er ekki að reyna að vera gáfuleg, það gerist ósjálfrátt.Mér finnst fara hljótt um þetta Moggafíaskó um helgina, þar sem slegið var upp á forsíðu að fundist hefðu vísur í pósíbók sem Laxness átti að hafa ort barn að aldri. Hvar stendur málið? Veit að önnur vísan var auðgúggluð og kennd einhverjum Húnvetningi, en hvað með hina? Baðst Mogginn afsökunar, var einhver rekinn, komu skýringar?
Slúðrið nú í mig einhverju krassandi, verið svo væn.
mánudagur, september 22, 2008
Einn flýgur fiskur úr sögu og eftir standa tveir olíubrúsar
Annað dæmi. Í dag fór ég á glænýja bensínstöð N1 á Ártúnshöfða. Áður en þessi stóra stöð reis, var þarna smákofi sem stóð sína pligt býsna vel sem bensínstöð. Þar keypti ég alltaf olíu á bílinn minn, en hann er farinn að reskjast og þarf þykka olíu. Gat valið úr tegundum en keypti oftast Extra. Núnú. Ætlaði sumsé að kaupa olíu, ranglaði um víðáttur nýju stöðvarinnar, fann ekki neitt og spurði loks starfsmann. Var sagt að þykk olía fengist ekki lengur á stöðvum N1. Það voru aðeins til tvær tegundir, þær sem "seljast mest". Hins vegar mátti fá á bensínstöðinni bleiur, álegg, kex, rjóma, raksápu, frisbídisk og uppþvottalög. En ekki olíu á bílinn. "Áherslubreytingar", sagði afgreiðslumaðurinn. "Það verður að spara hilluplássið", svaraði hann brosandi þegar ég spurði af hverju í ósköpunum þeir gætu ekki haft fleiri en tvær olíutegundir til sölu á bensínstöðinni.
Mig langar að segja einhverjum að stinga markaðshyggjunni upp í rassgatið á sér. Veit bara ekki hver ber ábyrgð á þessu bulli.
sunnudagur, september 21, 2008
Horfum á Klovn
Vorum að koma úr kaffiboði á Suðurnesjum, en þar býr dóttlan Ásta með Maríu Önnu sinni. Ásta bakaði bollur sem heppnuðust ljómandi vel, þótt hún hafi tautað við baksturinn að hún væri ómöguleg í svona stússi. Svartsýnin kemur úr föðurættinni, og kallast þar "raunsæi". Pfft.
Veðrið er skítvont en það er notalegt að kúra undir teppi og lesa Pullman. Verið spök.
fimmtudagur, september 18, 2008
Biblían er barefli
- Get ekki rætt við fólk um pólitík nema það sé svo gott sem sammála mér.
- Get ekki talað við trúarnöttara um nokkurn skapaðan hrærandi hlut. Var barin með biblíu um daginn. Trúarofstæki er böl.
- Hagfræðileg hugtök lenda á hausnum á mér og skolast burt í skilningsvana straumi. Fæ fjarrænt blik í auga þegar gáfaða fólkið í sjónvarpinu talar með lotningu um fjármálamarkaðinn.
- Þegar rætt er um framkvæmdir, flísum lýst og niðurbroti veggja, talað um blöndunartæki og innréttingar þá byrjar athygli mín að fjara út. Ég hef ekki vott af innanhússarkitektalegum hæfileikum, rýmisgreind eða skipulagsgáfu. Um þetta geta allir sem séð hafa inn í skápa mína borið vitni.
Sjáið svo bara hvað ég er greindarleg hér.
Lægð er yfir lífi baunar
Auk þess legg ég til að Árni Johnsen verði gerður að forstjóra hins nýja Tónlistarhúss og risastór arnarkló hengd í austurhluta byggingarinnar.
þriðjudagur, september 16, 2008
Kreppa, sagnorð, veik beyging
Markaður, verslun með notaða hluti, t.d. Kolaportið.
FTSE, ófullnægjandi hnerri.
Vísitala, að tala gáfulega.
Lehman Brothers, þokkalegt rauðvín.
Króna, gervitönn.
Viðskipti, verslun með spýtur.
Gengi, skuggalegir unglingar í einum hnapp.
Fjármál, jarm.
Þessi frétt fékk meira á mig en meint hrun fjármálamarkaða vestanhafs. Ég sé eftir fréttastofu Útvarps.
mánudagur, september 15, 2008
Ró og reiði
Nei, í raun og veru ekki. En ég öfunda fólk sem heldur haus í erfiðum aðstæðum. Þegar ég verð reið puðrast eitthvað samhengislaust og bjánalegt út úr mér og svo, klukkan allt of andskoti seint, fyllist höfuð mitt af smellnum tilsvörum sem hefðu rústað andstæðingnum. Orðheppni ágæt, tímasetning vonlaus.En sumt getur maður hvort eð er ekki talað í betra horf, jafnvel þótt maður tali sig bláan í framan.
sunnudagur, september 14, 2008
Sushi, Gollum, listería, hystería
Nú er það ekki svo að ég sitji á árbakkanum og rífi af offorsi í mig hráan fisk eins og Gollum, en hef hingað til borðað ósoðinn fisk óhrædd, m.a.s. á erlendri grund (það voru ostrur í London, mikið assgoti var það nú skemmtilegt).
Ég gúgglaði sushi og listeríu út og suður, en sú leit skilaði litlu bitastæðu efni. Reyndar sá ég víða að óléttum konum er ráðið frá því að borða hráan fisk, en ég þarf nú ekki að hafa áhyggjur af því.
En æ, hvað allt getur verið hættulegt. Best að fá sér soðna ýsu stappaða með tómatsósu og kartöflum. Eða kjötsúpu.
laugardagur, september 13, 2008
föstudagur, september 12, 2008
Sló um mig og forskalaðist*
Ekki þarf að orðlengja frekar afleiðingar þessara svalheita. Yfir mig helltist snarlega haustkvef svo svæsið að slím spýtist út um öll göt á höfði.
Sauð upp á fjallagrösum áðan og mallaði grasamjólk. Sit nú og sýp úr kisubollanum mínum, sannfærð um að mér batni fljótt og vel. Aaahhh....hvað mjólk er góð....tsjú!
*ef ég man rétt er lokalínan úr Sódómu Reykjavík einhvern veginn svona: Láttu ekki slá um þig, þú gætir forskalast.
fimmtudagur, september 11, 2008
Öreindavaðall
Hér kemur eitt sýnishorn atómljóðanna sem bárust við tilraun þessa.
Að vera ég
er að leggja af stað að heiman
en gleyma hvert skal haldið
Að vera ég er að dreyma um kandífloss
á atkinskúr
Að vera ég er að vera veðreiðahestur
sem dreymir um að vera bikkja
sem dreymir um að vera veðreiðahestur
Unnur af Seljavegi, 30 ára
Blogglistaskóla Íslands, nöldurdeild
---
Í öllum ljóðunum má skynja leit höfunda að svörum við grundvallarspurningum mannlegrar tilveru. Fram koma árekstrar sem skapast af ósamrýmanlegum þáttum, má þar nefna mjólkurfernuljóð um mjólkurofnæmi og ljóðið um "innaníið-utanáið" höfundar. Einn ljóðmælandi sker sig úr og virðist sáttur við sitt innra líf, "frjáls og laus við prjál". Höfundum eru færðar bestu þakkir fyrir framlögin. Það er gott að yrkja.
Hvað er að vera ég? Góð spurning. Hvað er að vera þú? Það veist þú.
þriðjudagur, september 09, 2008
Yrkjum fernuljóð áður en það verður of seint
Get ekki látið það spyrjast um mig að farast með heiminum á morgun án þess að vera búin að yrkja fernuljóð.Hvað er að vera ég?
að vera ég er að hafa fæðst undir appelsínugulu þaki
og mamma sparkaði í lakið
að vera ég er stundum kandís
og stundum ódrekkandi viðbjóður sem heitir égermæster
að vera ég er upplifun miðaldra konu
með laglega beinagrind
að vera ég
er brothættur kúpull gamallar krónu
í fúnkísstíl
að vera ég er spurning
um öreindir
og gott kaffi
Elísabet frá Kirkjuteig, 47 ára
Grunnskóla Sleifarhrepps, sérdeild
Strákmenntir
Eitt er það sem vekur jafnan hjá mér undrun, en það er tilhneiging karlmanna til að samnýta lestur og salernisferðir. Auðvitað er það hrein þvæla að karlmenn geti ekki gert tvennt í einu.
mánudagur, september 08, 2008
Éta éta éta það munu allir geta, vinna vinna vinna það mun vera minna
Ég er að fara að skipta um starf. Hef verið vinnustað mínum trú í 15 ár, en nú eru breytingar á döfinni. Miklar breytingar.
Sá fyrsti sem segir að ég hafi bara gott af því að skipta um vinnu fær sent hor í pósti.
sunnudagur, september 07, 2008
Lostaskessur og vagnar frá Venus
Þó að ég hafi oft borðað skessujurt, hafði ég ekki lesið mér almennilega til um þessa ágætu plöntu. Vissi bara að mér fannst hún góð og vonaði þar af leiðandi að hún væri æt. Til er margvíslegur fróðleikur um skessujurt, m.a. er fullyrt að hún sé "karllæg jurt" og "veki karlmönnum losta". Merkisplanta.Fór í göngutúr áðan með mömmu og vorum við dolfallnar í steríó yfir öllum berjunum, könglunum, fræjunum og öðrum ávöxtum jurtaríkisins sem blasa við sjónum. Fann mjög fallegan runna með appelsínugulum berjum og fagurbleikum blómum. Berin voru girnileg og rauf ég himnuna á einu þeirra og sleikti smá safa. Bragðið var hreinn viðbjóður og mig er búið að logsvíða í munninn í nokkra klukkutíma.
Mér skilst að það sé fremur lítil hætta á að því að börn leggi eitraðar plöntur sér til munns, en hvað um miðaldra húsmæður?
Lagðist í rannsóknir, svona ef þyrfti að leggja mig inn, en fann ekki lýsingu á þessum runna meðal eitruðu jurtanna. Það kom mér reyndar stórlega á óvart hvursu margar eiturplöntur eru algengar í görðum landsmanna, t.d. venusvagn.
Venusvagn (ljóshjálmur, bláhjálmur)
Pfft, glætan að ég smakki venusvagn.
föstudagur, september 05, 2008
Jurtaríkið á svölunum
Marði myntulauf í deiglu, hellti sjóðandi vatni yfir og hrærði vænum slurk af hrásykri með. Yndislegur drykkur, og afar frískandi eftir þunga kjötmáltíð.
Tók um daginn skessujurt og setti í saltþurrkun. Þá geymist hún svona hálfþurr í allan vetur og er frábær í súpur og kássur. Ætli maður geti þurrkað aðrar kryddjurtir á svipaðan hátt?
Best að gera fleiri tilraunir áður en aldingarðurinn drepst úti á svölum.
fimmtudagur, september 04, 2008
Heppnar varir
Hrikalega líst mér alltaf illa á stjórnmálamenn sem telja sig starfa í umboði guðs. Tóm vitleysa að þvæla guði greyinu í pólítík. Fólk sem finnur öll svörin í einni bók hræðir mig.
Sarah Palin er á móti fóstureyðingum, á móti réttindum samkynhneigðra og telur skírlífi fram að giftingu eðlilegan hlut. Í BNA er hún ósköp venjuleg afturhaldsbeygla, en væri hún í framboði hér, þá...já, þá hvað? Skyldi manneskja með slíkar skoðanir geta öðlast frama í stjórnmálum hér? Maður spyr sig.
Vona að þið finnið náð í hjarta til að fyrirgefa mér alla tenglana í þessari færslu.
þriðjudagur, september 02, 2008
Hollusta grænmetis
Ég stakk gómsætum gulrótum í augntóttirnar á konunni, þar til augun sprungu út úr höfðinu á henni. Tróð glænýrri gulrófu milli rauðmálaðra vara þar til hún blánaði í framan, kýldi hana í klessu með brakandi fersku blómkáli. Grýtti hana síðan til ólífis með nýuppteknum Ólafs rauðum.
Nei, nei. Ég er bara venjuleg hversdagsgunga og sendi henni illt augnaráð.
mánudagur, september 01, 2008
Baunarháttur og hökuvandræði
Hér er tekið ljóðsýni úr Gísla:
Baunarháttur
Af mér skola allan daun
aðstoðina fala
skrúbba mætti bakið baun
í bala.
Ljóðelskum lesendum er bent á halann við síðustu færslu til að njóta fegurðar tungumálsins. Baun þakkar klökk fyrir góða þátttöku og mun aldrei útiloka blanka, bilaða eða gulklædda frá lympíuleikunum sínum.
Verðlaunaskáld leikanna kýs að halda nafni sínu leyndu, vegna annríkis við rímæfingar, bragþjálfun og ljóðstafagerð.
Talandi um hökur. Ég er oft svolítið aum í álkunni, rauð og jafnvel rispuð. Þetta er auðvitað feimnismál en af mínu alkunna taktleysi læt ég vaða. Þannig er, kæri póstur, að hann Hjálmar minn er karlmaður í húð og hár, með tilheyrandi skeggrót. Stálsleginni. Á að giska fimm mínútum eftir að hann rakar sig eru komnir nýir broddar. Mér hefur dottið ýmislegt í hug, svo forðast megi eyðileggingu þeirrar þjóðargersemi sem andlitið á mér er. Til dæmis þetta:
- Hætta að kyssa kærastann (fyrr frýs í helvíti)
- Láta mig hafa það, safna siggi og fá höku eins og Jay Leno
- Tannlæknadúkur. Hvar fæ ég svoleiðis?
Þigg allar ábendingar með þökkum. Ekki mun af veita.
laugardagur, ágúst 30, 2008
Er málið að fúnna?
arga teymdi mjólkurkúnna
gasprandi um guðatrúnna
gæti verið dauður núnna.
Ragmana ykkur að koma með fleiri vísur sem endurspegla þróun málsins. Keppt verður í eftirfarandi baunlympíugreinum:
- þágufallsþraut
- slettukasti
- þolmyndarhlaupi
- nafnháttarlyftingum
- beygingarstökki
Út úr kú
Voðaleg hroðvirkni er þetta, hver skaut alla prófarkalesarana? Veit ekki hvort þið getið lesið fréttina, en þarna stendur m.a.: "Kú í Englandi var frelsuð úr prísund sinni nýlega en hún hafði fest höfuð sitt inni í þvottavéla trommunni. Gangandi vegfarandi kom auga á kúnna þar sem hún var orðin mjög pirruð..."
Hér er kýr
um kú
frá kú
til kýr.
Já, já, ég veit að þetta er tuð. En þetta kemur á prófinu.
fimmtudagur, ágúst 28, 2008
Júró sé lof og prís
Nú þarf ég bara að læra að ráða sudoku.
miðvikudagur, ágúst 27, 2008
Silfursýning og sjóböð
Verð að viðurkenna að mér fannst móttakan á Arnarhóli vandræðaleg. Rembingsleg kátína og uppgerðarléttleiki er ófyndinn. Og hvað voru þessir pólitíkusar (pólítíkansar? já, fjandakornið) að stilla sér upp þarna hjá landsliðinu? Veit einhver hvað "tæknimaður" gerir í handbolta?
Segið mér líka af hverju íslenskur almenningur á að borga ferðir fyrir efnafólk og embættismenn þegar þá langar að horfa á boltaleiki í Kína. Tvisvar.
Heigull er ekki kryddtegund
Litla raggeitin lærði aldrei á spegil.
þriðjudagur, ágúst 26, 2008
mánudagur, ágúst 25, 2008
sunnudagur, ágúst 24, 2008
Menning spenning
Vorum á þvílíkum menningarbuxum í gær, að það hálfa hefði nægt í nóbel og óskar. Eftir að hafa úðað í okkur fiskisúpu, Pippi, Lindubuffi og engiferöli, brugðum við okkur á ljóðaupplestur í Friðarhúsi, mjög notaleg stund og friðsæl. Hugskotið var flott. Svo beint að hlusta á örlítið meira voljúm, brýnin úr gömlu eldiskvínni minni (Kópavogi), Fræbblana. Þeir eru merkilegt band, batna með árunum. Sem ég litaðist um meðal áhorfenda stakk mig hvað jafnaldrar mínir eru að jafnaði orðnir aldraðir. Getur þetta staðist?
Sáum þessu næst Megas með Súkkatsöngvarann ágæta sér við hlið bera fram orð í söng. Býsna skemmtilegt að heyra í þeim. Mér gekk betur að skilja annan en hinn.
Bærinn var fullur af fólki og flugeldasýningin var búmm, hviss, vííííí!
Og silfur er fallegt.
laugardagur, ágúst 23, 2008
Hjólatúrinn og kúltúrinn
- Rákumst á þennan risavaxna pappírsmann í húsasundi. Eldri kona, sem sagðist vera móðir ljóðskálds, bar á hann lím af miklum dugnaði en vildi ekki leyfa mér að taka mynd af sér.
- Fórum á Prikið og fengum okkur franskar með tómatsósu. Fyrir ofan barinn hékk miði sem á stóð: Herbert Guðmundsson skuldar.
- Sáum þrjár mótorhjólalöggur háma í sig nammi og hlæja dátt.
- Hittum vinkonu mína ljóðskáldið í bakgarði við Ingólfsstræti. Þar fékk ég í hendur eintak af nýútkominni bók hennar, Uppsveifla/Niðursveifla. Hlakka óstjórnlega til að hreiðra um mig á uppáhaldsstaðnum og lesa bókina. Til hamingju Hugskot! Mig langar að verða eins og þú þegar ég verð stór (lesist fimmtug).
- Skipulagður göngutúr í Hólavallargarði var bæði fróðlegur og skemmtilegur. Ég sá draug, svartklædda konu, sem starði illilega á mig. Kannski það hafi verið hún sem hrinti mér um daginn. Ég elska þennan kirkjugarð.
fimmtudagur, ágúst 21, 2008
Raunverur í rafi
Bara að hægt væri að kenna fólki eðlilega umgengni um netið. En það er víst jafn líklegt að sumt fólk fari eftir netreglunum eins og að það fari eftir umferðarreglunum.
Set þennan hér til að létta stemninguna, en aðeins þið sem lásuð bláa textann megið skoða.
Legg ekki meira á ykkur.
miðvikudagur, ágúst 20, 2008
Drjúg þrjú orð
þriðjudagur, ágúst 19, 2008
Svona er hún inní
Hjálmar útskýrði margt fyrir mér um tölvur. Það er hægt að vita heilan helling um þetta mál. Mér finnst móðurborð t.d. afar fallegt orð. Örgjörvi rausnarlegt. Skjákort skondið. Tengikví geimvísindalegt. Og kæliplata minnir mig á tyggjó.
Ég sver við efri vör Huggýjar að ég tók eftir öllu sem hann sagði.
mánudagur, ágúst 18, 2008
Bið bloggvini mína velvirðingar á þessari færslu, hún er ekki fyrir hvern sem er
Oft er ég glöð og skrifa gleðileg blogg. Mörgum þykja súr blogg skemmti-legri en sæt blogg. Það skil ég vel. Hver veit nema ég reyni að skrifa nokkur harm-þrungin***** blogg á næstunni. Þá líður þér ábyggi-lega betur.
*tómstunda-gaman er eitthvað sem maður gerir sér til dægra-styttingar**
**dægra-stytting er eitthvað sem maður gerir sér til dundurs***
***dundur getur þýtt föndur í þessu samhengi, eða slór
****t.d. er algeng skamm-stöfun og stendur fyrir orðin "til dæmis"
*****sorg-leg
sunnudagur, ágúst 17, 2008
Nýjar kartöflur og aldnir snillingar
Við gáfum fóstru nýveiddan lax með glænýjum kartöflum og ís með berjasírópi í eftirmat. Hún var sátt við kostinn.
Erum annars búin að stússast í mat, þvotti, tölvuviðgerðum, tiltekt, leti, leggja í krækiberjalíkjör, búa til berjahlaup og saft og bulla um ropapeysur.
Svona helgar eru bestar.
föstudagur, ágúst 15, 2008
Kindagötubarnaleikur
Ég er hjólbeinótt. Minn fyrrverandi er kiðfættur og útskeifur. Er nema von að ég hafi haldið að við myndum eignast beinfætt börn? Smávægilegur misskilningur af minni hálfu, en rétt að taka fram að þetta átti engan þátt í skilnaði okkar Péturs. Börnin líkjast föður sínum uppúr og niðrúr og er það vel. Bráðmyndarleg og vel lukkuð börn öll þrjú.
Um daginn fór ég í fjallgöngu, seig í sinum og fótviss, og þá var mér bent á ótvíræðan kost þess að vera hjólbeinóttur. Sem kætti mig ógurlega.Það er barnaleikur fyrir hjólbeinótta að ganga kindagötur.
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
Borgin sem sefur
Og Hanna Birna er "sæl" með endurtekið samstarf við bændaflokkinn og Óskar er "bjartsýnn". Þau ætla að leggja áherslu á efnahagsmál (virkjanir). Svo sætt.
Nú getum við öll sofið róleg. Ekki vekja mig næst.
miðvikudagur, ágúst 13, 2008
Bilerí og óskiljanlegur skortur á súpukjöti
Annars gengur einhver óáran yfir heimilið þessa daga. Sem dæmi má nefna tíðar bilanir:
- Flugnaspaðinn minn rafmagnaði eyðilagðist, nú þegar geitungar eru sem mest að ofsækja okkur. Hata þessi kvikindi.
- Klósettkassinn var sprunginn, það var alltaf vatn á gólfinu og versnaði stöðugt. Við fundum loks upptök lekans með því að beita kungfu brögðum og grænum matarlit. Unnustinn (ljómandi handlaginn) setti upp nýjan kassa í gær sem við keyptum í Byko fyrir ærið fé.
- Sótti bílinn úr viðgerð í gær, það fór í honum háspennukefli og fleira. Bifvélavirkinn spurði hvort ég vildi eiga gamla keflið en ég afþakkaði og sagði að það yrði í besta falli ljótur blómavasi.
- Heimilistölvan hrundi í fyrradag, harði diskurinn er trúlega ónýtur og þar fóru myndir og annað persónulegt stöff fyrir lítið. Ég átti bakköpp af flestum skjölunum, en ekki myndunum.
- Góða skapið er búið að vera brokkgengt en ég held að það hafi hrokkið í þýðan gang í kvöld, því við örkuðum á Skálafell í sérlega fallegu veðri.
sunnudagur, ágúst 10, 2008
Ber og kropp

- Gekk á Geitafell í Þrengslum með góðum vinum. Í Geitafelli var krökkt af aðalbláberjum og krækiberjum (sbr. myndir hér að ofan)
- Nennti ekki að drekka rauðvín að gagni því mér leiðist þynnka heil reiðinnar býsn
- Ræddi um múmínálfana, Bob Moran, Legíonerinn, manninn með stálhnefana, Lilla, Basil fursta og fleiri risa bókmenntanna við vini mína
- Fann bleika burnirót (sjá mynd)
- Tíndi fjallagrös handa vinkonu minni sem bakar grasabrauð
- Var ekki í bænum í gær og missti af Gleðigöngunni
- Frétti að það væri afar slæm hugmynd að vera í hvítum buxum og borða Nóakropp í bíó
- Borðaði steinbít og aðalbláber að norðan, en mamma og pabbi færðu okkur björg í bú, nýkomin úr matarkistunni Dalvík. Berin þaðan eru langbest
- Bjó til berjasíróp, vanillusíróp og fiskbollur
laugardagur, ágúst 09, 2008
Aulatal
Er afar ósátt við "sparnaðarráð" á baksíðu Moggans. Auratal hefst á þessum orðum: "Þótt námsmann vanti ekki peninga í vetur kann það engu að síður að vera sterkur leikur hjá honum að taka námslán hjá LÍN og leggja til hliðar..." Svo er útlistað hvernig námsmaðurinn slyngi, sem á nægan pening fyrir, getur tekið námslán, lagt það til hliðar og ávaxtað á námsárunum. Hvað næst? Ábendingar frá Mogganum um hvernig hægt sé að fá atvinnuleysisbætur þótt maður vinni svart, feika veikindi og kría út örorkubætur og "leggja til hliðar"? Síðan hvenær hefur það verið hlutverk LÍN að hjálpa ríkum krökkum að koma sér upp "varasjóði"? Held að þessi blaðamaður Moggans ætti að kynna sér hlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna og skammast sín, ef hann er fær um það.Peningahyggjan er heimsk og blind.
föstudagur, ágúst 08, 2008
Sældin ein
Sáum móbrúnan yrðling á vappi við vatnið. Einnig sáum við fálka sem virtist hafa töluverðan áhuga á yrðlingnum og stakk sér niður að honum. Hef aldrei fyrr séð tófu úti í náttúrunni og heldur ekki fálka. Reyndi að taka myndir, en þær komu ekki nógu vel út, enda á ég bara imbakameru.
Legg ekki meira á ykkur, enda þreytt og sæl, rjóð í kinnum og í maga mínum er smjörsteikt bleikja með kartöflum. *DÆS*
miðvikudagur, ágúst 06, 2008
Afneitun á flösku
Álpaðist til að kaupa gosdrykkinn Mix um daginn og fannst hann heldur verri en vant er. Skoðaði flöskuna og svo virtist sem ég hefði keypt eitthvert dæet-drasl í ógáti, ef ekki bara ölæði. Gaumgæfði miðann og sjá: Mix drykkurinn er sykurlaus en það er sykur í honum.Ekki ætla ég að deila við Egil Skallagrímsson, hann er víst svo skapvondur.
þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Þvottaráð óskast
Lenti í því að fá blátt naglalakk í falleg drifhvít sængurföt (það mál er ótengt syni mínum). Hvernig næ ég naglalakki úr líni? Á ég að þora að nudda það upp úr asetoni, kámast ekki allt út?
Að öðru. Í dag leið mér eins og aula. Fór með úrið mitt til úrsmiðs til að fá nýja rafhlöðu og þegar ég sótti það var mér sagt að rafhlaðan væri í fínu lagi. Úrið hafði stoppað af því að takkinn var útdreginn. Úrsmiðurinn hefði hæglega getað ýtt takkanum inn og rukkað mig um nýtt batterí. En hann gerði það ekki. Sætt af honum.
Jæja, ætla að tölta út í búð og kaupa fisk. Þið getið sveiað ykkur upp á að það verður hvorki ýsa né plokkfiskur.
Góðar stundir.
mánudagur, ágúst 04, 2008
Gagn, orð, skraut
"Búa hér í frjálsu samfélagi...blabla...nýtum náttúruna á skynsaman hátt....blabla....þessar ferðir eru yfirleitt mjög erfiðar vinnuferðir...blabla...við Íslendingar...blabla...í fyrsta lagi bauð íþróttasambandið forsetanum að fara...allir þjóðhöfðingar Norðurlanda fara...blabla...rektor kínversks háskóla sagði við mig, "við viljum læra af Íslendingum"...það er nú ekki gert ráð fyrir ræðuhöldum...blabla.."
Herra Ólafur Ragnar hefði átt að vera með eyrnalokka í stíl við hálsfestina. Jóhanna Vigdís var hins vegar afar smekklega til fara.





