Eftir fundinn bauð mamma byltingarsinni mér upp á vöfflur og kaffi á Amokka og það var harla gott.
laugardagur, janúar 24, 2009
Lýðurinn þéttur á Velli
Eftir fundinn bauð mamma byltingarsinni mér upp á vöfflur og kaffi á Amokka og það var harla gott.
Kreppumein
Staðfastlega blátt fólk vekur mér furðu stundum. Blá kona sagði við mig í gær, súpandi hveljur af æsingi: Guð hjálpi okkur ef Steingrímur Joð kemst til valda, þá fer allt til fjandans, hann skilar AGS láninu og við þurfum að ganga í roðskóm! Þegar ég hreyfði vesældarlegum mótbárum við þessu argúmenti, æpti hún með skelfingarsvip: Á ég að trúa því Elísabet að þú sért vinstrigræn? Ég stamaði eitthvað, lagði ekki í orðaskak við þessa raddsterku konu, og fannst býsna óþægilegt að vera gerð í einu vetfangi að heilum stjórnmálaflokki. Ég hef aldrei verið stjórnmálaflokkur, heldur stelpa og kona. Hef kosið ýmsa flokka en aldrei skilgreint sjálfa mig sem flokk. Það væri bara fitandi.
Ef ég fæ krabbamein, sem er ósköp líklegt því það er algengur sjúkdómur, langar mig að gripið verði til aðgerða til að sporna gegn því. Aðgerðaleysi mun ekki hefta útbreiðslu meinsins, heldur verð ég veikari ef það fær að grassera. Það er mín skoðun, en ef einhver spyr krabbameinið álits, segir það ábyggilega: Guð minn á himnum, það er miklu betra að leyfa mér að vaxa og dafna, alls ekki grípa til aðgerða gegn mér! Ég veit miklu betur en þú sjálf hvað er líkama þínum fyrir bestu.
Ætla á Austurvöll í dag, aðgerðaleysi er ekki kostur í stöðunni.

miðvikudagur, janúar 21, 2009
Ótal aukaleikarar í þessu leikriti
Ég verð að gera þá játningu að hjarta mitt þyngdist óþyrmilega við að sjá Alþingishúsið svona illa út leikið.
Tímarnir brenna og mennirnir með. Og það er auðvitað svakalegt en í staðinn fyrir að sökkva sér í melankólíu eins og ég gerði eftir að við komum heim greindi Hjálmar innra eðli Geirs.
Bitlaus
Mér finnst Geir eitthvað svo óheppinn með þjóð. Hann gæti hæglega barið í pott og gargað: Vanhæf íslensk þjóð, vanhæf íslensk þjóð.
En hann er víst ekki svoleiðis.
En hann er víst ekki svoleiðis.
Loksins fræg í útlöndum
Heima í dag með pestarkranga, sem betur fer er óralangt síðan það hefur gerst. Hjalti minn fékk háan hita og er grútslappur. Svei mér ef mamma gamla er ekki betri en enginn þegar maður er svona lasinn.
Rakst á þessa tilvitnun hjá dóttur minni, úr frétt á mbl: "Þannig má víða sjá að Ísland er viðmiðið þegar ekki verður neðar komist." Hljótum að geta reddað málunum með því að efla löggæslu um allan helming svo valdstjórnin fái frið til að vinna.

þriðjudagur, janúar 20, 2009
Vanhæfnin á ekki eyru
Ég er útslegin og orðlaus yfir valheyrn valdhafa. Hvað þarf að öskra hátt til að þeir heyri? Halda þeir að reiði þjóðarinnar vegna aðgerðaleysis og klúðurs sé bóla sem gangi yfir á nótæm? Þrjóska getur verið kostur en þumbaragangur ráðamanna þessa lands er ekki fyndinn.Þeir sem mæta í mótmælin eru ekki smjörkúkarnir, bankaglæponarnir, þjóðníðingarnir og landráðamennirnir sem seldu strit okkar næstu áratugi. Þeir sem mæta eru þjóðin.
Og þjóðin vill reka óhæfa úr starfi og ráða hæfa í þeirra stað. Flókið? Nei.
mánudagur, janúar 19, 2009
Grænsóknarflokkurinn
Hvað er líkt með Framsóknarflokknum og Bandaríkjunum? Ekki spyrja mig. En ég kætist yfir nýjum sópum.
Framsóknarflokkurinn er eitthvert púkalegasta apparat í heimi, grænmyglaður með hagsmunapotsfjósafýlu langar leiðir. En, það verður gaman að fylgjast með Sigmundi Davíð, hann er eldklár, með húmorinn í lagi og nennir vonandi ekki landlægu rugli og kjaftæði. Þótt fyrr frjósi í helvíti en að ég kjósi Framsókn er kosning Sigmundar gleðileg á einhvern hátt.
Er í glimrandi skapi í dag, fór í klippingu og keypti mér svo pæjulegan jakka að ég varð feimin við konuna í speglinum. Ójá.

sunnudagur, janúar 18, 2009
laugardagur, janúar 17, 2009
Eigum við að halda áfram að nenna þessu?
gera ekki mikið til að auka manni bjartsýni. Helvítis glæpamennska, segi ég. Ekki lyftist geð mitt heldur við fregnir af fasískum tilburðum löggæslunnar, sjá hér og hér, en ég í fávisku minni hef alltaf litið á lögregluna jákvæðum augum, alltaf talið hana vera mér og öðrum heiðarlegum borgurum þessa lands til aðstoðar.
Lögregluþjónn, hverjum þjónar þú?
fimmtudagur, janúar 15, 2009
þriðjudagur, janúar 13, 2009
Baunkamp
Nú er það átakið. Stefni að 100 armbeygjum og 50 kátínuhoppum eftir sex vikna þjálfun. Grunnformið er 12 armbeygjur og 10 kátínuhopp. Svo langar mig líka að geta hlaupið 5 km án þess að blása úr nös. Núna get ég hlaupið fram í eldhús og til baka, ónasaúrblásandi.
Það er ekki ljótara en það. Sagði afi.
mánudagur, janúar 12, 2009
Stjórn og mál, hagur og fræði
Robert Wade var skeleggur ræðumaður, og skemmtilegt hvernig hann bar nafn Péturs Blöndal fram, Petur Blunder. Í máli Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur stjórnsýslufræðings komu fram ýmsar upplýsingar um (meint) ámælisverð vinnubrögð heilbrigðisráðherra. Getur annars einhver útskýrt fyrir mér þennan margtuggna mun á "einkarekstri" og "einkavæðingu" í heilbrigðiskerfinu? Ef einkarekstur er svona gráupplagður, væri þá ekki ráð að "einkareka" t.d. lögreglu og tollgæslu líka?
Þótt ég skilji ekki hvað einkarekstur er miklu sniðugri en einkavæðing er ég samt búin að læra allt of mörg hagfræðileg hugtök gegn vilja mínum. Fne.
Fordæmi og fordæming
Barnslíkið lagði ég á tröppur Stjórnarráðsins. Bar þar fljótlega að ábúðarfulla miðaldra konu, smekklega til fara. Ilmvatnsský blandaðist reyk púðurkellinga. Konan klofaði yfir líkið án þess að fipast takturinn. Helför smelför.
Sýningin verður að halda áfram og ríkisstjórnin
laugardagur, janúar 10, 2009
Spilling, illska, föðurland og flöskuskeyti ungu stúlkunnar
Hnátan sem hér sést á mynd klappaði ákaft með litlu lófunum sínum fyrir ræðumönnum og af og til veifaði hún flösku með einhverjum skilaboðum í. Hvað ætli hafi staðið á miðanum í flöskunni? Var þetta mótmælaspjaldið hennar?
Mér finnst gaman að skoða mótmælaspjöld. Sá þessar áletranir: Haarde faarde burt og Auðmaður á ekkert föðurland. Svo kom ég auga á eitt þar sem stóð: Davíð er dýr. Já, hann er pottþétt rándýr, gamall og geðvondur tígur.
Þorvaldur Þorvaldsson flutti ræðu, en mér fannst mun tilkomumeira þegar hann brast í söng og flutti með þrumuraust lagið Aldrei einn á ferð (You´ll never walk alone, var tjáð að þetta væri baráttusöngur Liverpoolmanna).
Lárus Páll Birgisson sjúkraliði er fæddur ræðuskörungur og hrífur fólk auðveldlega með sér. Það er ekki öllum lagið.
Annars finnst mér ég hafa heyrt þetta allt áður, allt sem sagt er í þessum ræðum. Og á hverjum degi dembast yfir mann ný dæmi um spillinguna sem viðgengist hefur í þessu skítaþjóðfélagi. Er að verða æði dofin í hausnum, og óttast að ég sé hundléleg byltingarkona. Finnst ég lítil og ómáttug. Verð að muna að taka lýsi.
Eftir mótmælin stikuðum við á stuðningsfund við Palestínu í Iðnó, þar var troðfullt út úr dyrum. Karl Blöndal blaðamaður flutti vitræna samantekt á ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira var á dagskrá, m.a. tæknilegir erfiðleikar og fínar ræður.
Þetta var ágætur fundur um ógn og skelfingu sem er langt ofar skilningi mínum.
Sit nú og Júróvisjón rúllar í sjónvarpinu fyrir daufum eyrum. Ef ég á að segja eins og er þá finnst mér að það mætti flytja Ísraelsríki eitthvað annað (stakk ekki einhver upp á Utah?). Það má alveg útiloka þá úr Júróvisjón í leiðinni.
Af hverju ættum við ekki að slíta stjórnmálasambandi við þjóð sem hagar sér eins og Ísraelsmenn gera? Við höfum engu að tapa, umheimurinn álítur okkur minnipokamenn. Sem við erum, sérstaklega ef við gerum ekkert í því óréttlæti sem viðgengst hér á landi og annars staðar í heiminum.
miðvikudagur, janúar 07, 2009
Minna mál
Já, hann er vinnusamur, hann Guðlaugur Þór. Munur að hafa menn í ríkisstjórn sem vinna fyrir kaupinu. Ekkert andskotans væl í honum (eins og sumum) um að sumar aðgerðir séu voðalega flóknar og "táknrænar" eitthvað. Skoðið hér hvað strákurinn er duglegur - og allar þessar breytingar eiga að taka gildi 1.mars 2009, segi og skrifa.
Getum við ekki klónað huggulega dugnaðarforkinn Guðlaug? Þá yrði þess nú ekki langt að bíða að vandamálin gufuðu upp. Velferðarkerfið er allt of dýrt, og vitanlega hægt að nota skattpeningana í svalari hluti en spítala og heilsugæslu.
Veikt fólk er líka bara leim og engan veginn nógu hresst.

þriðjudagur, janúar 06, 2009
Hverjum iðrin hafna
Það sama gildir um tiltekna menn. Innyflin í mér þola fáa aðalleikara dýrustu sýningar sem sett hefur verið upp fyrir íslenskan almenning. Og þetta er ekki að persónugera vandann, heldur að líkamsgera hann. Líkami minn reynir bókstaflega að losa sig við slétta ásjónu Bjarna Á, truflað glott Davíðs, frosin augu Jóns Ásgeirs, geðluðruviprur Geirs, hrokasvip Ingibjargar, veiklyndisbrag Árna Matt, spillt Rómarkeisarayfirbragð Björgólfsfeðga. Svo fátt eitt sé nefnt.
Fjandakornið ég þoli ekki einu sinni teinótt dýr lengur.
mánudagur, janúar 05, 2009
Glóir hann Glitnis Bjarni
"Ég er reiður út í sjálfan mig fyrir að hafa trúað á hið góða, þ.e. markaðinn." Sagði Bjarni Á. Hann ætlar að láta það duga. Að segjast vera reiður út í sjálfan sig. Veit reyndar ekki betur en "markaðurinn" hafi reynst Bjarna prýðilega, allavega mun betur en mér og öðrum almenningi.
Takk Bjarni. Þú ert svooo sætur svona reiður, langar að klípa þig í kinnarnar og rugla hárgreiðslunni.
Takk Bjarni. Þú ert svooo sætur svona reiður, langar að klípa þig í kinnarnar og rugla hárgreiðslunni.
sunnudagur, janúar 04, 2009
Söfnuður heillegrar baunar
Einu sinni trúði ég á guð. Svo hætti ég því. Held ég sé töluvert bölsýnni nú en þegar ég hélt að guð og englarnir gættu mín og barnanna minna. En það gæti líka verið ellin.
Ef til vill væri ráð að stofna ný og glaðleg trúarbrögð, bara fyrir mig og lítinn munnsöfnuð.
Ef til vill væri ráð að stofna ný og glaðleg trúarbrögð, bara fyrir mig og lítinn munnsöfnuð.
föstudagur, janúar 02, 2009
Skilettekki
Á hverju eru þeir eiginlega sem litmerkja myndir í Rúv? Í gær var einhver Bourneþvæluspennumynd, rauðmerkt. Hún var ekki ljótari fyrir börn en meðal blettahreinsunarauglýsing. Núna er gulmerkt mynd í sjónvarpinu, algjörlega hryllilega viðbjóðslega ógeðsleg og heitir White Noise vibbasjó. Hún ætti að vera bönnuð innan 116 ára.
Hata myndir um drauga, geðveiki og ofbeldi (og trúða). Ég vil ævintýramyndir um bleika smáhesta, blá ský, gulan rabbabara og forvitin bollapör.
Hata myndir um drauga, geðveiki og ofbeldi (og trúða). Ég vil ævintýramyndir um bleika smáhesta, blá ský, gulan rabbabara og forvitin bollapör.
fimmtudagur, janúar 01, 2009
Heimaleikir og heimaföt
Íklædd gráum velúrbuxum keyptum á árum feitrar sjálfsmyndar skrifa ég þennan fyrsta pistil ársins 2009. Veit ekki af hverju ég tek fram að ég sé að skrifa pistil, það virðist einhvern veginn óþarfi. Hver skilur konur í víðum velúrbuxum?
Fór í bráðskemmtilegt fjölskylduboð í gærkvöld, þar sem áratugahefð er fyrir "leikaleik", en hann felst í því að leika orð líkt og gert er í Útsvari. Keppendur rúlluðu upp hugtökum eins og marfló og mæðuveikigirðing á nótæm. Tímametið átti móðir Hjálmars, en hún náði að koma Bónus til skila á 5 sekúndum. Snillingar.
Og mér fannst skaupið afskaplega fyndið. Finn fyrir djúpu þakklæti til listamanna, hrikalega væri lífið leiðinlegt án skapandi fólks.

miðvikudagur, desember 31, 2008
Góðar gæftir
Mikið vona ég að síldin jafni sig.Ótalmargt fleira gáfulegt gæti ég sagt, en þessi kona er búin að því öllu og ef hún fer í pólitík þá hef ég eitthvað að kjósa.
Megi árið 2009 færa okkur miklar og góðar breytingar, minna rugl og meira réttlæti.
mánudagur, desember 29, 2008
Glyðruleg óþægindi á uppsprengdu verði
Í dag fór ég í búð á Laugaveginum að skipta mjög fallegum undirfötum sem ég fékk í jólagjöf, en hlýrar brjóstahaldarans voru mjóir og svolítið óþægilegir. Í umræddri búðarholu gaf að líta nærklæðnað, ilmvötn, blúnduverk, sjiffonsloppa, titrara og ágætt úrval fjaðraskrauts á geirvörtur en ekki eina einustu flík sem flokkast gæti sem ærleg brók. Engin brjóstahöld voru þarna undir 13 þúsund krónum og náttkjólgopa einn sá ég á 54 þúsund. Afgreiðslukonan var kuldaleg í framkomu, tattóveruð og þvengmjó. Hún leit á mig fyrirlitningaraugum þegar ég spurði hvort hún ætti ekki einhver "þægileg" undirföt. Djöfull leið mér eins og mest púkó konu í heimi.
Mig langaði að benda þessari hortugu horrenglu á að ekki væri gaddavír sem skerst inn í holdið hugmynd allra kvenna um góð undirföt, en mat aðstæður svo að það hefði ekki skilað neinu í þjóðarbúið.
Ef þessi okurbúlla verður ekki farin á hausinn eftir mánuð, þá skal ég hundur heita og éta köttinn minn í kaupbæti.

sunnudagur, desember 28, 2008
Gullbrúðkaup og jólaamstur
Í mínu tré bar það helst til tíðinda á annan í jólum að pabbi og mamma fögnuðu gullbrúðkaupi. Fimmtíu ár eru ærinn tími í ektaskap. Foreldrar mínir eru býsna sprækir, eiga 16 beina afkomendur, fjölmörg viðhengi og einn kött. Haldin var stórveisla í tilefni dagsins, þar sem boðið var upp á sauðalæri af Barðaströndinni og forláta marsipantertu í eftirmat. Brúðkaupsmyndin var "prentuð" á tertuna miðja, en þótt afi og amma séu góð vildi enginn borða þau. Eða, jú, forvitna litla systir mín beit aðeins í myndina og kom þá í ljós að hún var óæt. Tertan var að öðru leyti gómsæt, get heilshugar mælt með Mosfellsbakarí. Og mér finnst brúðkaupsmyndin af mömmu og pabba falleg, enda eru þau vandaðar manneskjur.
En nú ætla ég að lesa um morð og löggur mér til andlegrar upplyftingar.
fimmtudagur, desember 25, 2008
Börnin, bækur og hlýjar tær, best í heimi
Börn eru stórmerkileg og undurgóð fyrirbæri. Bara ef þið skylduð ekki vita það.Vænst þótti mér um gjafirnar frá afkvæmunum þessi jól. Ásta gaf mér yndislegar bækur, þar af eina um menntamann með bláar tilfinningar. Matti gaf mér Engar smá sögur og Hjalti minn gaf mér skóna sína. Bókstaflega. Hann bjó til þæfða lopainniskó í vetur og hafði ég dáðst ákaflega að þessum skæðum, enda vönduð og hlý smíð. Haldiði að þeir hafi svo ekki dúkkað upp í jólapakkanum til mín?
Auk þess fékk ég stórskemmtilega myndasyrpu af systkinunum í jólagjöf, sem tengdadóttirin, hún María Anna, tók fyrir skömmu.
Meira hvað ég er stolt af þessum krökkum. Meira hvað ég er heppin.
mánudagur, desember 22, 2008
Kærleikskveðjan
319.733 Íslendingar voru svo óheppnir að fá ekki jólakort frá mér í ár. Skil að þeir séu sárir. Ég er sjálf í þessum hópi og finn höfnunina hlaðast upp.En...öllu vænu og góðviljuðu fólki óska ég gleðilegra jóla. Hinir mega eiga sig, t.d. skítalabbinn sem keyrði á stórum jeppa á fantahraða framhjá mér í dag og skvetti yfir mig flóðbylgju af drullu, krapi og bleytu þannig að ég stóð gegndrepa á gangstéttinni, sótbölvandi.
Borðum, drekkum og gleðjumst... þó ekki sé nema yfir því að þetta skítaár er að verða búið. Næsta ár verður vafalaust verra, men den tid, den sorg.
Friður, ást, feitir ostar og réttlæti!
fimmtudagur, desember 18, 2008
Sól, jól, kjól, ról, ból, skjól, fól
þriðjudagur, desember 16, 2008
Skröggsbaun
Hér gefur að líta skapvonda offitusjúklinga, sundursagaðan auðmann, bankafulltrúa illskunnar, fjölmiðlavesaling, anarkistakellingu, Svölu Bjö (veit ekki af hverju hún kom, sénsinn að ég nenni að skilja það), afhausaðan kalkún, jólasvein sem heyrir raddir, gallblöðru Geirs Hilmars og rassinn á Ingibjörgu Sólrúnu í g-streng. Hjalti skreytti svo eina hjartakökuna með stóru, feitu dollaramerki og sagði að það væri tákn jólanna. Gat skeð að barninu dytti ekki fokkings IKR í hug.
Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf, ekki skrifa á eitt einasta jólakort, ekki extra einn einasta skáp (ég er svo fyndin), ekki kaupa eitt einasta jólatré og ekki finna fyrir einni einustu furunál af hátíðarspenningi.
Annars er það helst að frétta að ég á einstaklega góða að og fyrir það skal ég vera þakklát og hleypa örlítilli birtu inn í brjóstholið. Skárra væri það nú.
mánudagur, desember 15, 2008
Horst allur

Nei, fyrirsögnin er ekki horstallur (efrivör?). Horst Tappert er dáinn, aðeins 85 ára gamall. Í huga mér ómar Aus der Reihe Derrick - stefið ástsæla, í moll.
Allar myndir sem ég fann af stórmenninu voru litlar. Því setti ég fjórar inn og á einni sést Klein, hliðardúddinn skondni, tilberi Tapperts.Ó, að heimurinn væri uppskrúfaður, stífur, velmegandi og fyrirsjáanlegur eins og Derrick þáttur. Ó, að hetjan næði alltaf vondu köllunum og réttlætið sigraði. Ó, að tásíðir augnpokar kæmust aftur í tísku.
Ó, að mér liði ekki eins og Horst Tappert leit út.
laugardagur, desember 13, 2008
Þögn er sama og þykkjuþung
Á leiðinni á mótmælin mættum við nokkrum glaðlegum manneskjum. Þær voru allar útlendingar. Með troðfulla innkaupapoka. Djöfulsins skítaland, hugsaði ég og arkaði snjóinn þung á brún. Svo þögðum við Hjálmar í 17 mínútur og störðum á Alþingishúsið. Mér fannst þetta snotur hugmynd, en ekki gátu allir þagað. Nokkrir sauðdrukknir vesalingar öskruðu nær stanslaust eitthvað um að þeir ætluðu sko ekki að borga meira og ýmislegt annað ekki sérlega áheyrilegt. Rónarnir eru sjálfsagt orðnir leiðir á að leggja til samfélagsins.
Fyrir framan okkur stóð ungur maður í úlpu og svaraði í farsímann hátt og snjallt: "Nei, nei, ég er bara hérna á þöglum mótmælafundi."
Get ég gefist upp á þjóðinni minni? Held að það sé ekki í boði.
Fyrir framan okkur stóð ungur maður í úlpu og svaraði í farsímann hátt og snjallt: "Nei, nei, ég er bara hérna á þöglum mótmælafundi."
Get ég gefist upp á þjóðinni minni? Held að það sé ekki í boði.
þriðjudagur, desember 09, 2008
Hrokapína, siðblinda, spillingarverkur og dáðleysisdofi
Frá blautu barnsbeini hef ég undrast stórum hvers vegna fólk borgar hvítuna úr augunum fyrir vanlíðan steypta í postulín, einhverjar Bing og Crosby* snobbstyttur af ómálga börnum sem engjast um af sársauka. Verkin um verkinn bera dúlluleg nöfn: tannpína, magapína, höfuðverkur, eyrnaverkur. Já, hver hefur ekki lent í því að hlæja góðlátlega að eyrnaverk barnsins síns?Væri sjálf spenntari fyrir svona styttum af ráðherralufsum, auðmannavesalingum og teinóttum smjörkúkum.

*jájájá, ég veit alveg að þetta er ekki Bing og Crosby, heldur Bang & Olufsen, eða var það Hviss & Bæng?
mánudagur, desember 08, 2008
Boys and their ljós
Minn elskulegi sambýlismaður kom með fremur fátt veraldlegra muna í búið; skrifborð, allnokkurt bókasafn, gamalt útvarp og magnað safn sækadelískra dúka og sængurfata. Nú nýlega dró hann úr pússi sínu grip sem vakið hefur ómælda aðdáun hjá öllum áhugamönnum um jólaskreytingar: ljósaseríu með átta, ég endurtek ÁTTA stillingar- og blikkmöguleikum. Dýrðin, dýrðin.
laugardagur, desember 06, 2008
Fallegar konur. Vont land.
Ólygin sagði mér að Davíð Oddsson ætlaði framvegis að lesa fréttirnar á RÚV. Þið heyrðuð það fyrst hér.
föstudagur, desember 05, 2008
Hangilopasteypa
Hangi læri á að gera stinningaræfingar frá nára og niður. Hangi frampartur er upplagt að leita á náðir lífstykkja. Hangi kjöt má ráðfæra sig við lækni. Hangi stjórnin áfram ber að gera byltingu.
fimmtudagur, desember 04, 2008
miðvikudagur, desember 03, 2008
Riðuveikt fé
Eitt andartak hélt ég að hér væri á ferð enn ein fréttin um krónuna sem riðar til falls.
Tryggingarnar mínar hækka um 45 þúsund kall milli ára, er það eðlilegt? Er eitthvert tryggingafélag öðru betra - á ég að tala við elisabet.is, hefur einhver reynslu af því? Hvaða banki er minnst djöfullegur? Á maður að reyna að láta Íbúðalánasjóð yfirtaka helvítis bankalánið?
Legg til að einhverjir af þessum teinóttu, vatnsgreiddu (atvinnulausu) bankamönnum og peningaundrabörnum setji upp fjármálaráðgjöf fyrir sauði eins og mig. Fjárhirðarnir mega mín vegna vera í gulum bol, hvítum íþróttasokkum og grænum apaskinnsbuxum við vinnuna. Svona er ég umburðarlynd.
En að skrimta á þessu skítaskeri verður ekki auðveld skemmtun á næstunni. Vitna mér til hugarhægðar í Þórdísi: Fokk, fokk, fokk.

þriðjudagur, desember 02, 2008
Menning klapp klapp klapp
Menningin ríður ekki við einteyming um þessar mundir, Hjálmar bauð mér í jólahlaðborð á föstudaginn, í Hagkaup um miðnætti á laugardaginn, í leikhús á sunnudaginn að sjá Skugga Svein í skemmtilegri uppfærslu Leikfélags Kópavogs, og svo röltum við á útgáfutónleika kórs Áskirkju áðan. Eitt skildi ég ekki, það var ekkert klappað fyrr en í lokin, mig langaði svo að klappa, en sat á mér. Kór Áskirkju er firnaflottur. Og þótt það hefði verið asnalegt að ég klappaði ein, þá hefði það ekki náð bjánaskapnum þegar Nokia-hringing dauðans ómaði hjá einum sauð í salnum, eða þegar eirðarlaus kjánakall marghnoðaði skránni sinni saman. Skrjáf getur verið ærandi. Og það ætti að banna þessa diririri-diririri-diririri-ding hringingu.
Merkilegt með Skugga Svein, mér skilst að ekkert leikverk hafi verið sett jafnoft á svið hér á landi, en samt hefur mér einhvern veginn tekist að lifa næstum fimm áratugi án þess sjá það. Eða...reyndar rámar mig í einhverja svart-hvíta Grasa Guddu í sjónvarpinu þegar ég var lítil. En það er ekkert að marka minnið, það man ekki neitt og svo er líka óralangt síðan ég var lítil.
Áfram á menningarlegu nótunum, á ég að hringja í RÚV og kvarta út af bindinu sem fréttaþulurinn er með um hálsinn? Það er allt of bleikt við þessa skyrtu.

mánudagur, desember 01, 2008
Þjóðin sem úti frýs
Á ó-óskalistanum mínum er bókin Saga af forseta. Gefðu mér hana og ég veit að þú hatar mig.
Ég er svo pirruð á forréttindapakki þessa lands að mig langar að öskra. Stóð í skítakulda á Arnarhóli áðan og hlustaði enn eina ferðina á fínar ræður en það breytist ekki neitt, gerist ekki neitt, stjórnvöld hlusta ekki á þjóðina, þeim er sama um þjóðina. Valdhafar sitja í hlýjunni á meðan við frjósum og gölum á útifundum sem engu skila.
Á meðan Kvennalistinn var og hét kaus ég hann, það var áður en Ingibjörg Sólrún breyttist á skuggalegan hátt í Davíð. Nú eygi ég þá lausn að við fáum neyðarstjórn kvenna. Er vit í öðru?
Ég verð að trúa á eitthvað.

sunnudagur, nóvember 30, 2008
Hromparaleg hippiló
Tilkynningar á gufunni vekja mér hljóðlátan fögnuð. Púng-tur-is læðist þar títt fram á varir ógoglumæltra þula.
Hér er gáta. Hvað þýðir sögnin að dabba?
a. dóla sér
b. óhreinka
c. punkta niður
En dabbía?
a. sukk
b. hellingur
c. orða
Og getið nú!
Hér er gáta. Hvað þýðir sögnin að dabba?
a. dóla sér
b. óhreinka
c. punkta niður
En dabbía?
a. sukk
b. hellingur
c. orða
Og getið nú!
laugardagur, nóvember 29, 2008
Upphróparar og spyrjarar
Mótmæli enn einn laugardaginn og ekkert bólar á viðbrögðum stjórnvalda, valdhafar bifast ekki. Solla og Geiri slepptu m.a.s. blaðamannafundi í gær. Finn fyrir höfnun að þau skuli ekki einu sinni nenna að dingla framan í okkur snuði og hálfsannleika.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)