Sjálf hef ég tilhneigingu til að kaupa mér ljóðabækur og skó.
laugardagur, október 04, 2008
Ó, hve létt er þitt skóljóð
Sjálf hef ég tilhneigingu til að kaupa mér ljóðabækur og skó.
fimmtudagur, október 02, 2008
Glugginn minn. Núna.
þriðjudagur, september 30, 2008
mánudagur, september 29, 2008
Ég á ekki krónu en langar í öxi
Þessi dagur er búinn að vera hreint agalegur. Samt á ég ekki einu sinni hlutabréf í Glitni, nema jú þetta sem Davíð gaf mér í morgun. Menn eru reiðir og æstir og tala eins og þeir séu til í að taka lán fyrir lítið notaðri fallöxi og gera lukkuriddarana, sem gömbluðu með annarra fé og töpuðu, höfðinu styttri. Úr munni dagfarsprúðasta fólks streyma gremjulegar lýsingar á sukki og svínaríi útrásaróskabarnanna fyrrverandi og maður fær blóðbragð í munninn og kyrjar með: Til helvítis með gráðugu svínin! Lán okkar eymingjanna tútna út í verðbólgunni, færast hratt og örugglega að því marki að maður sitji uppi með miklu hærri skuld en sem nemur verðgildi eignarinnar. Ömurlegt að "góðærið" skyldi fljúga hjá án þess að skíta á mig einu sparði. Djöfulsins djöfull!
Í dag öðlaðist ég skilning á frönsku byltingunni.
Sé fyrir mér aukna spurn eftir þjónustu handrukkara á næstunni, því eins og einn úr þeirri stétt mælti við vesældarlegan rukkþega í Kompásþætti um daginn: "Sko, þúst, það eru lög og reglur í landinu."
Auk þess lýsi ég yfir þungum áhyggjum af því hversu mjög skilnuðum fjölgar í kreppunni, þ.e. skilnuðum vegna fjárhagsvanda. Veit þetta fólk ekki hvað er hrikalega dýrt að skilja? Það veit ég, maður lifandi.
Fugl dagsins er steypa.

laugardagur, september 27, 2008
Ásta
Nær aldarfjórðungi síðar þekki ég þessa mannveru betur en flesta og víst er að ég elska hana. Skilyrðislaust. Ekkert í þessum heimi skiptir mig meira máli en hamingja barna minna.
Þegar Ásta var kríli og bjó í Amríku, vildi hún alloft láta syngja fyrir sig og féll það iðulega í minn hlut vegna tónfötlunar föður hennar. Ég hef aðeins samið eitt lag um ævina, og var það við vísukorn í bók sem henni fannst skemmtileg. Mamman í bókinni hélt nefnilega áfram að vilja syngja fyrir strákinn sinn þótt hann yxi úr grasi og yrði virðulegur kall.
I´ll love you forever
I´ll like you for always
as long as I´m living
my baby you´ll be.
Miðill miðill það er draugur í bólgunni
Ég heyri oft hljóð sem ég skil ekki, sé oft hluti sem ég skil ekki, finn oft lykt sem ég skil ekki. Heimurinn er svo fullur af stöffi sem ég skil ekki að það er varla pláss fyrir hitt.
Eitt af því sem ég skil ekki er af hverju fólk skýrir hluti sem það skilur ekki með fyrirbærum sem það skilur ekki, t.d. draugum. Hljóð í gömlum húsum eru nærtækt dæmi. Og verðbólgan.
Eitt af því sem ég skil ekki er af hverju fólk skýrir hluti sem það skilur ekki með fyrirbærum sem það skilur ekki, t.d. draugum. Hljóð í gömlum húsum eru nærtækt dæmi. Og verðbólgan.
föstudagur, september 26, 2008
Berlúskóní-effektinn dillar sér í gulum kjólum
Dóttirin segir að allir fésbókarar hafi þekkt myndgaldurinn sem ég notaði til að gera síðustu færslu unaðsfagra og áhugaverða, en ég sá forritið í fyrsta skipti í gær og fannst það svaka sniðugt. Ásta sagði enn fremur að Facebook væri skemmtilegt apparat og sýndi mér ýmsa gáfumannaklúbba þar. Kristín hefur núð mér upp úr afdalamennsku minni, sem birtist í því að ég er hvorki með síðu á téðri fésbók, né hef ég horft á einn einasta Friendsþátt. Veit ekkert um Jóí, Spóí og Bimbí, eða hvað þessir blessuðu vinir heita nú allir saman.
Horfði á málbeinið brillera í Útsvari. Finnst Útsvar skemmtilegur þáttur, já, pottþétt lúðalegt, ég veit. En er þátturinn Síngíngbí sem nú rúllar á Skjá einum smart? Það þykir mér ekki, og þá er kannski von til þess að hann sé hipp og kúl.
Kær kveðja úr sveitinni.

fimmtudagur, september 25, 2008
Bauneríski draumurinn
Hér er bráðfyndin síða sem hann Hjálmar gróf upp. Óborganlegur þessi amöríski fílingur.

Mér finnst að allar hárgreiðslustofur ættu að hafa forrit í þessa veru, þá gæfist tækifæri til að skoða hvernig mismunandi hárgreiðslur klæði mann, svona áður en skærin segja snippsnipp og maður þarf að fara út á götu með hauspoka.
þriðjudagur, september 23, 2008
Keðjumas
Ásta mín yndisleg klukkaði mig og ætla ég ekkert að gera með það annað en greina frá því að ég er keðju-keðjuslítari. Hef slitið keðjur frá því ég var fóstur, segja má að mér haldi engar keðjur fremur en Húdíni, tala nú ekki um þessar fjárans búðakeðjur. Þegar litli bróðir minn var í alvörunni lítill hafði hann gjarnan þennan brandara á hraðbergi: Viltu veðja? Kúkur og keðja. Ég er ekki að reyna að vera gáfuleg, það gerist ósjálfrátt.Mér finnst fara hljótt um þetta Moggafíaskó um helgina, þar sem slegið var upp á forsíðu að fundist hefðu vísur í pósíbók sem Laxness átti að hafa ort barn að aldri. Hvar stendur málið? Veit að önnur vísan var auðgúggluð og kennd einhverjum Húnvetningi, en hvað með hina? Baðst Mogginn afsökunar, var einhver rekinn, komu skýringar?
Slúðrið nú í mig einhverju krassandi, verið svo væn.
mánudagur, september 22, 2008
Einn flýgur fiskur úr sögu og eftir standa tveir olíubrúsar
Meira ruglið þessi kapítalismi. Á Íslandi er verið að strauja burt alla fjölbreytni í verslun og þjónustu. Langar að nefna hér tvö dæmi: Til skamms tíma var öndvegis góð fiskbúð á Gullteig. Þar keypti ég í matinn 2-3 sinnum í viku, rabbaði við hressa og skemmtilega afgreiðslumenn og fékk aldrei vondan fisk í soðið. Nú er þessi fiskbúð horfin sem slík, en í staðinn er komið eitthvert skrambans keðjufyrirbæri sem heitir Fiskisaga. Margar fiskisögur, allar eins og sérstaða litlu búðanna úr sögunni.
Annað dæmi. Í dag fór ég á glænýja bensínstöð N1 á Ártúnshöfða. Áður en þessi stóra stöð reis, var þarna smákofi sem stóð sína pligt býsna vel sem bensínstöð. Þar keypti ég alltaf olíu á bílinn minn, en hann er farinn að reskjast og þarf þykka olíu. Gat valið úr tegundum en keypti oftast Extra. Núnú. Ætlaði sumsé að kaupa olíu, ranglaði um víðáttur nýju stöðvarinnar, fann ekki neitt og spurði loks starfsmann. Var sagt að þykk olía fengist ekki lengur á stöðvum N1. Það voru aðeins til tvær tegundir, þær sem "seljast mest". Hins vegar mátti fá á bensínstöðinni bleiur, álegg, kex, rjóma, raksápu, frisbídisk og uppþvottalög. En ekki olíu á bílinn. "Áherslubreytingar", sagði afgreiðslumaðurinn. "Það verður að spara hilluplássið", svaraði hann brosandi þegar ég spurði af hverju í ósköpunum þeir gætu ekki haft fleiri en tvær olíutegundir til sölu á bensínstöðinni.
Mig langar að segja einhverjum að stinga markaðshyggjunni upp í rassgatið á sér. Veit bara ekki hver ber ábyrgð á þessu bulli.

sunnudagur, september 21, 2008
Horfum á Klovn
Við Hjálmar erum búin að liggja yfir Klovnþáttum (segið þetta upphátt) alla helgina. Ótrúlega eru Casper og Frank fyndnir náungar. Og óþolandi.
Vorum að koma úr kaffiboði á Suðurnesjum, en þar býr dóttlan Ásta með Maríu Önnu sinni. Ásta bakaði bollur sem heppnuðust ljómandi vel, þótt hún hafi tautað við baksturinn að hún væri ómöguleg í svona stússi. Svartsýnin kemur úr föðurættinni, og kallast þar "raunsæi". Pfft.
Veðrið er skítvont en það er notalegt að kúra undir teppi og lesa Pullman. Verið spök.

fimmtudagur, september 18, 2008
Biblían er barefli
Hef komist að eftirfarandi um sjálfa mig.
Sjáið svo bara hvað ég er greindarleg hér.
- Get ekki rætt við fólk um pólitík nema það sé svo gott sem sammála mér.
- Get ekki talað við trúarnöttara um nokkurn skapaðan hrærandi hlut. Var barin með biblíu um daginn. Trúarofstæki er böl.
- Hagfræðileg hugtök lenda á hausnum á mér og skolast burt í skilningsvana straumi. Fæ fjarrænt blik í auga þegar gáfaða fólkið í sjónvarpinu talar með lotningu um fjármálamarkaðinn.
- Þegar rætt er um framkvæmdir, flísum lýst og niðurbroti veggja, talað um blöndunartæki og innréttingar þá byrjar athygli mín að fjara út. Ég hef ekki vott af innanhússarkitektalegum hæfileikum, rýmisgreind eða skipulagsgáfu. Um þetta geta allir sem séð hafa inn í skápa mína borið vitni.
Sjáið svo bara hvað ég er greindarleg hér.
Lægð er yfir lífi baunar
Mér leiðist heimska mannanna, þessar rækallans lægðir fara illa í mig og yfirlýsingar allra helstu ráðamanna vestrænna ríkja um að allt sé í lagi á fjármálamarkaðnum valda mér djúpum áhyggjum.
Auk þess legg ég til að Árni Johnsen verði gerður að forstjóra hins nýja Tónlistarhúss og risastór arnarkló hengd í austurhluta byggingarinnar.
Auk þess legg ég til að Árni Johnsen verði gerður að forstjóra hins nýja Tónlistarhúss og risastór arnarkló hengd í austurhluta byggingarinnar.
þriðjudagur, september 16, 2008
Kreppa, sagnorð, veik beyging
Úlan Bator Bútan Nepal. Ég er með banana í eyrunum.
Markaður, verslun með notaða hluti, t.d. Kolaportið.
FTSE, ófullnægjandi hnerri.
Vísitala, að tala gáfulega.
Lehman Brothers, þokkalegt rauðvín.
Króna, gervitönn.
Viðskipti, verslun með spýtur.
Gengi, skuggalegir unglingar í einum hnapp.
Fjármál, jarm.
Þessi frétt fékk meira á mig en meint hrun fjármálamarkaða vestanhafs. Ég sé eftir fréttastofu Útvarps.

mánudagur, september 15, 2008
Ró og reiði
Ég öfunda svo fólk sem heldur alltaf ró sinni.
Nei, í raun og veru ekki. En ég öfunda fólk sem heldur haus í erfiðum aðstæðum. Þegar ég verð reið puðrast eitthvað samhengislaust og bjánalegt út úr mér og svo, klukkan allt of andskoti seint, fyllist höfuð mitt af smellnum tilsvörum sem hefðu rústað andstæðingnum. Orðheppni ágæt, tímasetning vonlaus.
En sumt getur maður hvort eð er ekki talað í betra horf, jafnvel þótt maður tali sig bláan í framan.
Nei, í raun og veru ekki. En ég öfunda fólk sem heldur haus í erfiðum aðstæðum. Þegar ég verð reið puðrast eitthvað samhengislaust og bjánalegt út úr mér og svo, klukkan allt of andskoti seint, fyllist höfuð mitt af smellnum tilsvörum sem hefðu rústað andstæðingnum. Orðheppni ágæt, tímasetning vonlaus.En sumt getur maður hvort eð er ekki talað í betra horf, jafnvel þótt maður tali sig bláan í framan.
sunnudagur, september 14, 2008
Sushi, Gollum, listería, hystería
Mér finnst sushi sérlega gott og gaman að búa það til. Yfirleitt þykir mér hrár fiskur gómsætur, t.d. skelfiskur, lúða, lax og silungur. Þetta barst í tal um daginn á kaffistofunni í vinnunni, þar sem ég sat og rabbaði við samstarfskonu mína, sem er læknir. Hún gretti sig svolítið yfir þessum matarvenjum mínum og sagðist aldrei borða sushi sjálf nema fiskurinn í því hefði verið frystur. Sagði hráan fisk (nefndi sérstaklega lax) geta borið í sér stórhættulega bakteríu sem heitir listería.
Nú er það ekki svo að ég sitji á árbakkanum og rífi af offorsi í mig hráan fisk eins og Gollum, en hef hingað til borðað ósoðinn fisk óhrædd, m.a.s. á erlendri grund (það voru ostrur í London, mikið assgoti var það nú skemmtilegt).
Ég gúgglaði sushi og listeríu út og suður, en sú leit skilaði litlu bitastæðu efni. Reyndar sá ég víða að óléttum konum er ráðið frá því að borða hráan fisk, en ég þarf nú ekki að hafa áhyggjur af því.
En æ, hvað allt getur verið hættulegt. Best að fá sér soðna ýsu stappaða með tómatsósu og kartöflum. Eða kjötsúpu.

laugardagur, september 13, 2008
föstudagur, september 12, 2008
Sló um mig og forskalaðist*
Ekki þarf að orðlengja frekar afleiðingar þessara svalheita. Yfir mig helltist snarlega haustkvef svo svæsið að slím spýtist út um öll göt á höfði.
Sauð upp á fjallagrösum áðan og mallaði grasamjólk. Sit nú og sýp úr kisubollanum mínum, sannfærð um að mér batni fljótt og vel. Aaahhh....hvað mjólk er góð....tsjú!
*ef ég man rétt er lokalínan úr Sódómu Reykjavík einhvern veginn svona: Láttu ekki slá um þig, þú gætir forskalast.
fimmtudagur, september 11, 2008
Öreindavaðall
Oft er sagt að blogg gangi út á hreina sjálfhverfu. Í síðustu færslu reyndi ég að fá fólk til að skrifa "hvað er að vera ég" fernuljóð. Sjálfhverfara gerist það varla. Hugsanlega hefði getað myndast lítið svarthol í bloggheimum við árekstur ljóða okkar örveranna sem sólum í hringi á netveginum. Mér fannst vel þess virði að taka sénsinn.
Hér kemur eitt sýnishorn atómljóðanna sem bárust við tilraun þessa.
Að vera ég
er að leggja af stað að heiman
en gleyma hvert skal haldið
Að vera ég er að dreyma um kandífloss
á atkinskúr
Að vera ég er að vera veðreiðahestur
sem dreymir um að vera bikkja
sem dreymir um að vera veðreiðahestur
Unnur af Seljavegi, 30 ára
Blogglistaskóla Íslands, nöldurdeild
---
Í öllum ljóðunum má skynja leit höfunda að svörum við grundvallarspurningum mannlegrar tilveru. Fram koma árekstrar sem skapast af ósamrýmanlegum þáttum, má þar nefna mjólkurfernuljóð um mjólkurofnæmi og ljóðið um "innaníið-utanáið" höfundar. Einn ljóðmælandi sker sig úr og virðist sáttur við sitt innra líf, "frjáls og laus við prjál". Höfundum eru færðar bestu þakkir fyrir framlögin. Það er gott að yrkja.
Hvað er að vera ég? Góð spurning. Hvað er að vera þú? Það veist þú.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)