þriðjudagur, júlí 28, 2009
Minningarkorn
Einbeitt bý ég mig undir inngöngu föðurlandsins í ESB, kaupi Euroshopper vörur hægri-vinstri og hef mynd af Össuri á náttborðinu (fyrir utan stytturnar af honum í garðinum). Ein er sú tegund morgunkorns sem ég hef fengið sérstakt dálæti á, en það eru hunangshúðuð uppblásin hveitifræ. Með gepofte tarwe á tungu standa minningar ljóslifandi fyrir hugskotssjónum, minningar um áhyggjulausan stelpukjána sem ólst upp á allt öðru Íslandi fyrir mörgum áratugum.
Og þegar ég hnerraði áðan, kröftuglega, með munninn fullan af þessu dísæta evrópska loftgæti, hrutu gullkorn af vörum mér.
sunnudagur, júlí 26, 2009
Mynd sjálfsins
Pollurinn er stærri í dag og lífið ábyggilega flóknara, mun fleiri fletir til speglunar. Nútíma unglingurinn er t.d. býsna iðinn við að teygja út handlegginn, setja upp stút og smella af. Reyndar á þetta svo til eingöngu við um stelpur, en þær hef ég séð taka endalausar myndir af sér, í aðskiljanlegustu pósum (þeir strákar sem ég umgengst eru flestir niðursokknir í tölvuleiki og nenna varla að skipta um nærbuxur).
Var að velta vöngum yfir þessu, þ.e. áhrifum sjálfmyndatökuæðis stúlkna á sjálfsmynd og stað þeirra í úníversunni. Held þetta sé ekki endilega slæmt, því stúlka/kona getur smellt af sér hundrað myndum og fengið allavega eina þokkalega og þá er hún valin og hinum eytt. Gott er að eiga sæta mynd í fésbók.
Spurning hvort við verðum hégómlegri (og ráðvilltari) tegund með hverri kynslóð, í réttu hlutfalli við fjölgun spegla. Og skyldi Darwin hafa verið duglegur að skipta um nærbuxur?
föstudagur, júlí 24, 2009
Um ferð
Ég er fegin að vera komin heim. Og mér þótti gott að faðma börnin mín áðan.
miðvikudagur, júlí 15, 2009
Nytfegurð
*Eins og glöggir vita er hér vísun í góðrasiðahöfðingjann Kleópötru Kristbjörgu
mánudagur, júlí 13, 2009
Sagan um pústfólkið
Vona að ég fyllist aldrei pylsufíkn, því þá biðu mín langdvalir á öðrum vinsælum matsölustað í huggulegu umhverfi. Bæjarins bestu.
laugardagur, júlí 11, 2009
Andtrú
Ég trúi ekki á stjörnuspá, ég trúi ekki á miðla, ég trúi ekki á andaglas, ég trúi ekki á drauma, ég trúi ekki á spákonur, ég trúi ekki á galdra, ég trúi ekki á forlög, ég trúi ekki á heilun, ég trúi ekki á drauga, ég trúi ekki á ofurhetjur, ég trúi ekki á guð, ég trúi ekki á líf eftir dauðann, ég trúi ekki á hráfæði, dítox eða árunudd.
Ég er myrkfælin og hrædd við trúða. Og mig dreymdi skæri í nótt.
Ég er myrkfælin og hrædd við trúða. Og mig dreymdi skæri í nótt.
fimmtudagur, júlí 09, 2009
mánudagur, júlí 06, 2009
Límonaði sítrónufólksins (gjaldeyrisskapandi skapandi þáttagerð raunveruleikans)
Á Skjáeinum er annar hver þáttur svokallaður "raunveruleikaþáttur". Slíkir þættir virðast mér gjarnan snúast um einhverja keppni (eða keppi, sbr. "The biggest loser"). Sjá má lið leysa raunveruleg sakamál (Murder), ungar stúlkur keppa í tíkarskap og fyrirsætufærni (ANTM), lið elda mat, vinna við glanstímaritagerð, þrauka í nábýli við snáka, eitraða froska og lygara, svo fátt eitt sé nefnt. Það þykir sem sagt spennandi að sjá "venjulegt fólk" í óvenjulegum aðstæðum.Íslenska þjóðin (guð blessi hana) er ekki stór. Hún er lítil og sæt, ótrúlega mikið rassgat. Ég legg til að við bjóðum okkur fram til að vera eitt stykki raunveruleikaþáttur, heiminum til skemmtunar. Og fá borgað fyrir. *
Ætti að vera létt verk og löðurmannlegt að grafa upp lið hér á landi. Ekkert þarf að breytast, bara finna grípandi nafn á krógann, útjaskað selebb til að stjórna, og koma með kamerukrúið.
Action!
*í hvaða gjaldmiðli sem er nema íslenskum krónum
föstudagur, júlí 03, 2009
Þjóðmál, menning og lús
Á forsíðu blaðsins Grapevine gefur að líta afar upplýsandi mynd um æseifhelvítisandkotanshelvítið.
Einu verð ég að fá að kvarta yfir. Ekki nóg með að ég sé beygð yfir ástandi þjóðar minnar, heldur er komin blaðlús í klettasalatið mitt úti á svölum. Blaðlús er útsendari kölska og eina vopn mitt gegn henni er grænsápa. Skíman að það dugi.
En þrátt fyrir lúsina vil ég efla menningarstig lands og lýðs. Bendi ykkur hér með á öndvegis fínt tímarit. Það heitir Tíu þúsund tregawött, ritstjóri er Hildur Lilliendahl.
Guð blessi Ísland.
En þrátt fyrir lúsina vil ég efla menningarstig lands og lýðs. Bendi ykkur hér með á öndvegis fínt tímarit. Það heitir Tíu þúsund tregawött, ritstjóri er Hildur Lilliendahl.
Guð blessi Ísland.
miðvikudagur, júlí 01, 2009
Clint óskast, má hafa með sér byssu
Sit hér með nokkrum unglingum og horfi á The good, the bad and the ugly. Merkileg ræma og stórundarleg tónlist. Og Clint er alltaf...*sæluhrollur*.
Strákarnir mínir eru dottnir í gamlar myndir, í gær horfðum við á Psycho. Þeir hlógu dátt að sturtuatriðinu, fannst það óborganlega fyndið. Mér var ekki hlátur í hug þegar ég sá þessa mynd í gamla daga, gat varla farið í sturtu lengi á eftir. Meira hvað bíómyndir brenndu sig inn í vitund manns, eftir að ég sá Jaws, gat ég varla farið í bað (þetta fer að hljóma eins og ég hafi oft verið óhreint ungmenni).
Ísland vantar Clint. Hann mundi ganga hreint til verks og skjóta verðbólguna.
Strákarnir mínir eru dottnir í gamlar myndir, í gær horfðum við á Psycho. Þeir hlógu dátt að sturtuatriðinu, fannst það óborganlega fyndið. Mér var ekki hlátur í hug þegar ég sá þessa mynd í gamla daga, gat varla farið í sturtu lengi á eftir. Meira hvað bíómyndir brenndu sig inn í vitund manns, eftir að ég sá Jaws, gat ég varla farið í bað (þetta fer að hljóma eins og ég hafi oft verið óhreint ungmenni).Ísland vantar Clint. Hann mundi ganga hreint til verks og skjóta verðbólguna.
sunnudagur, júní 28, 2009
Afstæði háranna
Nútímamaðurinn er umkringdur sjálfsögðum hlutum. Hugmyndir okkar um fegurð eru í sjálfu sér jafn furðulegar og hjá "frumstæðu" fólki, sá t.d. um daginn fræðsluþátt um þjóðflokk í Afríku þar sem tíðkast að skera neðri vörina frá andliti kvenna og setja leirdisk í gatið. Dyan Cannon (í bíómyndinni á Rúv í gær) var með svo úttútnaðar varir af kollageni, eða hvað það nú heitir, að hún mátti vart mæla, hvað þá sýna svipbrigði með ofstrekktri andlitshúðinni. Sumum gæti þótt það ókostur fyrir leikkonu, en um það má deila í hennar tilfelli.Mig langar ekki í varir á stærð við Hummer, mig langar ekki í brjóst á stærð við Perluna og mig langar ekki í bótox, dítox eða kickbox. Mér finnst heimurinn fullur af gerviþörfum og bábiljum og langar ekkert að elta dillur og tísku. Eftir því sem ég kemst næst þjást konur í Finnlandi og Þýskalandi ekki eins harkalega af höfnuðum líkamshárum ("unwanted hair"), og í BNA og víðast hvar í Evrópu, þar sem liggja haugar af kroppsloðnu sem enginn vill fóstra. Ég skal játa að mér þykir sjálfsagt að raka á mér leggi og krika (þótt í prinsippinu sé það bjánalegt) og til þess hef ég notað fokdýrar rakvélar og borgað hvítuna úr augunum fyrir eitthv
ert kvenlegt rakkrem. Eftir að klípan skall á, hefur verð á þessum varningi, sem dýr var fyrir, rokið upp úr öllu valdi. Í sturtunni í morgun uppgötvaði ég að svona rakkrem er algjör óþarfi, það er fullt eins gott að nota venjulega sápu. Hann afi minn rakaði sig alltaf þannig að hann lét fasta sápu freyða með rakbursta, bar hana á sig og skóf svo á sér kjammana. Segið mér, af hverju notar enginn fasta sápu lengur við rakstur? Raksápa í álbrúsa er hroðalega slæm fyrir umhverfið, fyrir utan hvað verðið á þessu drasli er fáránlega hátt. Rakstursbransinn, eins og reyndar allur útlitsiðnaðurinn, er uppfullur af gerviþörfum á uppsprengdu verði.
Spörum gjaldeyri og verum loðin. Eða notum umhverfisvæna og ódýra sápu. Eða gefum kallinum rafmagnsrakvél (ég keypti eina slíka handa mínum um daginn). Sem minnir mig á að dóttir mín sagði mér frá ógnvekjandi rafmagnstæki sem togar hár úr slíðri, eitt og eitt í einu. Sérhannað fyrir konur til að berjast við hárin sem þær hafna. Kvenmenn eru masókistar upp til hópa.Guð blessi Ísland.
föstudagur, júní 26, 2009
Stórborgarbaunin
Hljóta að teljast tíðindi að mér var boðið í BNTM partí fyrsta daginn hér. Það var verið að undirbúa töku ("fashion shoot") fyrir þáttinn í næsta húsi við hótelið, ég var eitthvað að forvitnast og glaðhlakkalegur dyravörður bannaði mér að taka myndir en bauð mér þess í stað í partí sem haldið var um kvöldið.
London er hávaðasöm. Umferðin, mannmergðin, mengunin. Fjölbreytileiki mannlífsins yfirþyrmandi. Alveg klárt að ég er meira fyrir fjöll en stórborgir svona heilt yfir.
Já, og mamma mín er sjötug í dag. Hún er yndisleg kona og fyndin og skemmtileg og sjaldan skömmótt. Ég er að spá í að kenna henni tunglgöngusporið á eftir, svona í minningu Michaels Jackson.
Sjerpinn kveður að sinni. Veriði stillt elskurnar.
sunnudagur, júní 21, 2009
"Við"
Kunningjakona mín býr með fjölskyldu sinni í pínulítilli íbúð í "fínni götu" í 101. Þau búa þröngt og hafa úr litlum efnislegum gæðum að moða. Í næsta nágrenni, við sömu götu, stendur reisulegt sprilljón fermetra hús, glæsikerrur í heimkeyrslunni, m.a. silfurlitur reinsróver éppi. Í þessu stóra húsi býr fólk sem kennt hefur verið við útrásina.Núnú. Umrædd kunningjakona lenti á kurteislegu spjalli við útrásareiginkonuna um daginn, en sú var nýkomin úr langri siglingu um Karabíska hafið, kaffibrún og sælleg, klædd silfurlitum leðurjakka í stíl við éppann. Eitthvað barst talið að ástandi þjóðarbúsins og þá setti útrásarkvendið upp þjáningarsvip og dæsti þunglega, svo glamraði í gútsískartinu: "Æ, já. Vonandi lærum við eitthvað af þessu."
laugardagur, júní 20, 2009
Sætt og súrt
Mikið dæmalaust er nú skemmtilegt að ferðast. Fór með hressum Skýrrurum í sólstöðugöngu á Skessuhornið, það var hrikalega gaman og erfitt líka. Ég ætla að vera góð stúlka og sleppa hástemmdum lýsingum á því hvernig það er að standa á fjallstindi í miðnætursól.
Margt ber til tíðinda á ferðalögum hérlendis. Má nefna að við rákumst á verðmiða einn ágætan í ónefndri vegasjoppu. Miðinn prýddi hanka sem á héngu sælgætispokar af erlendum uppruna, einhvers konar súrt hlaup. Hér er mynd af miðanum:
Guð blessi Ísland.
miðvikudagur, júní 17, 2009
Hvalkjöt og kandífloss
Fyrir ykkur sem viljið lesa um æsispennandi lífsstíl blanka og ófræga fólksins (sem fær aldrei orður eða verðlaunastyttur), þá get ég ljóstrað upp að ég fór í Bónus (alls staðar opið, af sem áður var), síðan í fjallgöngu á Vífilsfell, því næst þreif ég klósett og þvoði þvott og núna rétt áðan var ég að ljúka við fyrirtaks máltíð. Hrefnukjöt og bakaðar kartöflur. Salat, mynta og graslaukur af svölunum. Rækta nefnilega eitt og annað í svalakössum, en, nei, ekkert kannabis.
Svo var ég að spá í að fara ómáluð út á bensínstöð. Og kannski maður bregði sér í brjóstaminnkun líka.
Grýla sagði mér í óspurðum fréttum að ástandið væri gott. Hún er náttúrlega annáluð bjartsýnismanneskja og á í kvöld stefnumót við feitan útrásarvíking á harmónikkuballi á Ingólfstorgi. Allir þekkja smekk Grýlu á karlmönnum, verði henni að góðu.
Sumar.
sunnudagur, júní 14, 2009
Nývirkið
Mömmutal
Og annað má Matti eiga. Hann er alltaf góður við mömmu sína.
P.S. Mér finnst rétt að geta þess að ég hef nú uppfrætt þennan unga mann um réttindi við 18 ára aldur; þ.e. leyfi til að kvænast, kjósa, kaupa sér sígarettur og fá sér tattú.
föstudagur, júní 12, 2009
Letibloggarar og laxamentum latrones
Gengum á Móskarðshnjúka í dag eftir vinnu og ég steingleymdi að taka mynd af okkur göngugörpunum á toppnum, eftir frækilegan sigur við voðalegar skriður og flugbeittar líparíthellur. Hins vegar gaf ég gaum að smávinum fögrum, lá í mosa og myndaði foldar skart.
Sætukoppar.
Mér var bent á að tenglalistinn minn samanstandi að mestu af fólki sem er hætt að blogga, eða næstum hætt að blogga. Dapurlegt er það hrun. Á ég virkilega að enda ein og tuðandi í raftóminu?
Talandi um eilífðar smáblóm. Þegar við komum heim úr fjallgöngunni hrundi ég oní latastrák, aum og snúin í hnjám og ökklum, en Hjálmar tók (blístrandi af fjöri) til við að þvo þvott og vaska upp. Maðurinn er magnað þrekbúnt. Þegar hann ætlaði að þrífa safapressuna, kom fram áður óþekkt lífsform. Við köllum það útrásarmyglu, laxamentum latrones.
Talandi um eilífðar smáblóm. Þegar við komum heim úr fjallgöngunni hrundi ég oní latastrák, aum og snúin í hnjám og ökklum, en Hjálmar tók (blístrandi af fjöri) til við að þvo þvott og vaska upp. Maðurinn er magnað þrekbúnt. Þegar hann ætlaði að þrífa safapressuna, kom fram áður óþekkt lífsform. Við köllum það útrásarmyglu, laxamentum latrones.
Blessaður gróðurinn er svo duglegur, rétt eins og útrásarvíkingur í góðæri.
fimmtudagur, júní 11, 2009
Ístruflanir
Hin stöðuga löngun mín í ís heldur áfram að valda heilabrotum. Hjálmar sagði mér sögu af mömmu sinni sem fylltist á tímabili ómótstæðilegri löngun í blómkál, borðaði það frá morgni til kvölds. Þá kom í ljós að hana vantaði járn. Ef mann langar í ís daginn út og inn, hvað vantar þá í kroppinn? Hjálmar sagði að mig vantaði "í" og "s".
Og þá heiti ég Elabet.
þriðjudagur, júní 09, 2009
Af ólund og lundahruni
Það er fjallað um undirhöku Britney Spears í fjölmiðlum en enginn skrifar staf um undirhöku Gunnars Birgissonar, sem er þó sýnu stærra umfjöllunarefni að mínu mati.
Get ekki talað um #($$HFF!"/&""!!! Æseif málið, það veldur mér of mikilli geðshræringu og ég sveiflast í afstöðu minni til aðgerða. Skítamál. Íslendingar flýja land unnvörpum og ekki annað hægt en hafa áhyggjur af slíkri óheillaþróun. Hér á að skattpína okkur vesalingana til helvítis, skera niður velferðarkerfið og láta okkur borga skuldir óreiðumanna þar til okkur þrýtur örendið. Eða svo segja svartsýnispésar. Bjartsýnisbósar þegja þunnu hljóði.
Í ofanálag hef ég svo áhyggjur af lundanum, en mér skilst að þrátt fyrir hrun stofnsins ætli Vestmannaeyingar að "fara varlega" í að banna veiðar í ár. Hvað þýðir "að banna varlega"? Sé fyrir mér hjálmklædda menn banka (hljóðlega) uppá hjá þekktum lundaföngurum og hvísla "hei, þú mátt ekki veiða lunda". En geta Vestmannaeyingar kannski veitt kanínur í staðinn fyrir lunda? Það væru búdrýgindi, nóg til og vel hægt að éta þær, að mér skilst.*
*ef einhver viðkvæmur Vestmannaeyingur les þetta, þá bið ég hann að telja upp að tíu áður en hann sendir mér haturspóst með afskornum lundakynfærum
Get ekki talað um #($$HFF!"/&""!!! Æseif málið, það veldur mér of mikilli geðshræringu og ég sveiflast í afstöðu minni til aðgerða. Skítamál. Íslendingar flýja land unnvörpum og ekki annað hægt en hafa áhyggjur af slíkri óheillaþróun. Hér á að skattpína okkur vesalingana til helvítis, skera niður velferðarkerfið og láta okkur borga skuldir óreiðumanna þar til okkur þrýtur örendið. Eða svo segja svartsýnispésar. Bjartsýnisbósar þegja þunnu hljóði.
Í ofanálag hef ég svo áhyggjur af lundanum, en mér skilst að þrátt fyrir hrun stofnsins ætli Vestmannaeyingar að "fara varlega" í að banna veiðar í ár. Hvað þýðir "að banna varlega"? Sé fyrir mér hjálmklædda menn banka (hljóðlega) uppá hjá þekktum lundaföngurum og hvísla "hei, þú mátt ekki veiða lunda". En geta Vestmannaeyingar kannski veitt kanínur í staðinn fyrir lunda? Það væru búdrýgindi, nóg til og vel hægt að éta þær, að mér skilst.*
*ef einhver viðkvæmur Vestmannaeyingur les þetta, þá bið ég hann að telja upp að tíu áður en hann sendir mér haturspóst með afskornum lundakynfærum
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)